- Auglýsing -
Handknattleiksdeild Þórs á Akureyri hefur krækt í liðsauka frá Færeyjum fyrir næsta keppnistímabil í Grill66-deildinni. Sagt er frá því á samfélagsmiðlum deildarinnar að samið hafi verið við Jonn Róa Tórfinnsson.
Jonn Rói er 22 ára gamall Færeyingur sem leikur í hægra horni. Kemur hann til félagsins frá Neistanum hvar hann lék í tvö ár undir stjórn Arnars Gunnarssonar.
Jonn Rói á 10 leiki að baki með yngri landsliðum Færeyinga.
- Auglýsing -