Þegar hefur einni viðureign í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla sem fram átti að fara á fimmtudaginn verið frestað vegna kórónuveirunnar. Veiran hefur stungið sér niður í herbúðir HC PPD Zagreb frá Króatíu sem átti að mæta þýska liðinu Flensburg í Zagreb.
Vonir standa til þess að leikurinn geti farið fram í næstu viku. Það flækir reyndar dagskrána að síðari leikir 16-liða úrslit eiga þá að fara fram.
Tveir leikir í fyrri umferð 16-liða úrslita fara fram á morgun. Kiel á að sækja Pick Szeged heim og Nantes fær Sigvalda Björn Guðjónsson og samherja í Vive Kielce í heimsókn.
Fjórir leikir eiga að fara fram á fimmtudag, í stað fimm, og loks er einn leikur áætlaður á föstudaginn á milli Elverum frá Noregi og Barcelona með Aron Pálmarsson innanborðs.