- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Stjarnan og Grótta leika til úrslita í kvöld

- Auglýsing -

Stjarnan og Grótta mætast í úrslitaleik um sæti í Olísdeild kvenna í Hekluhöllinni klukkan 19.30 í kvöld. Liðin standa jöfn eftir fjórar viðureignir í úrslitum umspils Olísdeildar, hvort þeirra hefur tvo vinninga. Leikið verður til þrautar í Hekluhöllinni í kvöld. Verði jafnt að leikslokum tekur við framlenging og önnur ef ekki liggja fyrir hreinar línur um sigur á annan hvorn veginn. Ef í nauðir rekur eftir tvær framlengingar verður sigur á annan hvorn veginn knúinn fram í vítakeppni.


Grótta hefur tvisvar unnið leiki liðanna í Hekluhöllinni, 23:21 og 35:26. Stjarnan hefur að sama skapi náð sér betur á strik á heimavelli Gróttu og haft betur tvisvar sinnum, 26:22 og 36:24. Síðast á sunnudaginn var.

Stjarnan lék í Olísdeildinni í vetur sem leið og hafnaði í næst neðsta sæti eftir baráttu við Selfoss sem hrapaði á milli deilda þegar upp var staðið.

Grótta hafnaði í öðru sæti Grill 66-deildar kvenna á eftir HK sem rauk beint upp í Olísdeildina.

Leikur Stjörnunnar og Gróttu í Hekluhöllinni í kvöld hefst klukkan 19.30 og verður vitanlega sendur út á Handboltapassanum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -