- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Einari Braga og samherjum tókst að knýja fram oddaleik

- Auglýsing -

Einar Bragi Aðalsteinsson og samherjar í IFK Kristianstad tókst eftir framlengda fjórðu viðureign í Alingsås að knýja fram sigur og krækja þar með í oddaleik í undanúrslitum á heimavelli á föstudaginn í úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar. Eftir mikinn barning vann IFK Kristianstad liðsmenn Alingsås, 36:33. Staðan var jöfn, 30:30, eftir hefðbundinn leiktíma.


IFK Kristianstad hefur þar með unnið tvær viðureignir í röð eftir að hafa verið komið með bakið upp að köldum vegg.

Einar Bragi skoraði sjö mörk fyrir IFK Kristianstad í kvöld og var næstmarkahæstur. Sænski landsliðsmaðurinn Axel Månsson skoraði 13 mörk.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -