Landsliðsmaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson samdi í vikunni við þýska félagið TSV Hannover-Burgdorf og skrifaði undir þriggja ára samning sem tekur gildi í sumar.
Hann yfirgefur þá norska félagið Kolstad IL eftir fjögurra ára dvöl. Kolstad frá Þrándheimi á í miklum...
„Mér fannst við gera margt mjög vel og það var líka margt sem mátti betur fara,“ sagði Elliði Snær Viðarsson, fyrirliði Íslands, í samtali við handbolta.is eftir 33:35 tap fyrir Svíþjóð í vináttulandsleik á Hlíðarenda í kvöld.
„Mér fannst við...
Íslenska landsliðið í handknattleik karla varð að játa sig sigrað í fyrri vináttulandsleiknum við Svíþjóð í N1-höllinni á Hlíðarenda í kvöld, 35:33, eftir jafna stöðu í hálfleik. Svíar voru öflugri í síðari hálfleik.
Liðin mætast á ný í Kaplakrika...
„Þetta var frekar skrítinn leikur. Það var mikið af mörkum og skrítið tempó í þessu,“ sagði Sigvaldi Björn Guðjónsson, hægri hornamaður Íslands, í samtali við handbolta.is eftir 33:35 tap fyrir Svíþjóð í vináttulandsleik á Hlíðarenda í kvöld.
„Við náðum einhvern...
Íslenska landsliðið í handknattleik karla tapaði fyrir sænska landsliðinu með tveggja marka mun, 35:33, í fyrri vináttuleik liðanna í N1-höllinni í kvöld. Staðan var jöfn í hálfleik, 19:19. Hálfgerður æfingaleikjabragur var á viðureigninni lengst af. Vonir standa til þess...
Þýskaland undir stjórn Alfreðs Gíslasonar og Króatía, sem Dagur Sigurðsson þjálfar, unnu bæði góða sigra í vináttulandsleikjum karla á heimavöllum sínum í kvöld. Þýskaland lagði Egyptaland 41:38 í tæplega 80 marka leik í Dortmund og Króatía vann Sviss 34:26...
Hin norska Camilla Herrem greindi nýverið frá því að hún hafi sigrast á brjóstakrabbameini. Stuttu eftir greiningu sneri Herrem aftur á völlinn með liði sínu Sola. Hún hrósar eiginmanni sínum og þjálfara Steffen Stegavik í hástert fyrir það hvernig...
Tveir leikir fóru fram í gær í forkeppni heimsmeistaramóts karla í handknattleik, Evrópuhluta. Áfram verður haldið í dag og í kvöld. Síðari umferð forkeppninnar fer fram á laugardag og sunnudag. Samanlagður sigurvegari tekur þátt í umspilsleikjum heimsmeistaramótsins upp úr...
Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari íslenska karlalandsliðsins hefur tilkynnt hvaða 17 leikmenn munu koma til með að taka þátt í vináttulandsleik gegn Svíþjóð á Hlíðarenda í kvöld. Er þetta fyrsti leikur Íslands síðan á Evrópumótinu fyrr á árinu.
Leikurinn hefst klukkan...
Handknattleikskonan efnilega, Silja Katrín Gunnarsdóttir, hefur framlengt samning sinn við Fram, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá handknattleiksdeild félagsins.
„Silja Katrín er örfhent og spilar í hægra horni, er bráðefnileg og hefur verið í yngri landsliðum Íslands. Silja...
Landsliðskonan Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín hefur samið við þýska 1. deildarliðið Thüringer HC. Tekur samningurinn gildi í sumar og kveður hún þar með Fram sem hún hefur leikið með undanfarin þrjú ár. Alfa Brá fylgir í kjölfar unnusta síns,...
Handknattleiksdeild Vals hefur framlengt samninga við þrjá efnilega leikmenn. Nýju samningarnir eru til tveggja ára, segir í tilkynningu Vals.
Leikmennirnir þrír eru:
Dagur Leó Fannarsson hefur leikið stórt hlutverk í miðju varnarinnar í vetur ásamt því að hafa brugðið sér á...
Hornamaðurinn efnilegi hjá Aftureldingu, Stefán Magni Hjartarson, þarf að bíta í það súra epli að taka út leikbann í fyrsta leik Aftureldingar í umspili Olísdeildar karla sem fram fer eftir viku. Stefán Magni var úrskurðaður í eins leiks bann...
Þótt ein umferð sé eftir óleikin í Olísdeild kvenna er hægt að slá föstu hvaða lið mætast í fyrstu umferð úrslitakeppninnar sem ráðgert er að hefjist laugardaginn 28. mars. Haukar, ÍR, Fram og KA/Þór taka þátt en tvö efstu...
Berta Rut Harðardóttir hefur gert samning við Handknattleiksdeild Hauka um að leika með félaginu frá og með næsta tímabili. Berta Rut sem er uppalin Haukakona snýr heim að Ásvöllum eftir fjögur ár erlendis þar sem hún hefur leikið með...