Færeyingar eru í vænlegri stöðu til að tryggja sér fyrsta sæti á heimsmeistaramóti karla í handknattleik. Þeir unnu Bosníumenn, 24:22, í fyrri umspilsleik þjóðanna í Tuzla í Bosníu í kvöld. Síðari viðureignin fer fram í þjóðarhöllinni í Þórshöfn á...
Guðmunda Auður Guðjónsdóttir hefur gert samning við handknattleiksdeild Hauka um að leika með liðinu næstu árin. Guðmunda Auður, sem verður 19 ára í júlí, kemur til liðs við Hauka frá Stjörnunni þar sem hún hefur leikið síðustu tvö tímabil.
Guðmunda...
Dagur Sigurðsson landsliðsþjálfari Króata mátti bíta í það súra epli í gær að sjá sína leikmenn tapa með þriggja marka mun, 34:31, í vináttuleik við sænska landsliðið í Kristianstad. Axel Månsson var markahæstur hjá sænska landsliðinu með sjö mörk.
Króatar...
Carlos Martin Santos og handknattleiksdeild Umf. Selfoss hafa komist að samkomulagi um starfslok hans sem þjálfari meistaraflokks karla. Er þetta gert að ósk Carlos, eftir því sem segir í tilkynningu handknattleiksdeildar Umf. Selfoss í kvöld. Ekki kemur fram í...
Frakkland og Noregur standa afar vel að vígi eftir fyrri leikina í umspili heimsmeistaramóts karla í handknattleik sem fram fór í kvöld. Norðmenn fara með 13 marka forskot til Tyrklands eftir 13 marka sigur á tyrkneska landsliðinu, 43:30, í...
Guðrún Maryam Rayadh hefur skrifað undir tveggja ára samning við Handknattleiksdeild Víkings. Hún kemur til félagsins frá ÍR.
Guðrún er uppalin hjá HK og lék með Kópavogsliðinu upp í meistaraflokk áður en hún söðlaði um og samdi við ÍR. Hluta...
Hinn gamalreyndi þjálfari Lino Cervar hefur tekið við þjálfun Eurofarm Pelister í Norður-Makedóníu. Cervar er 75 ára gamall er goðsögn í heimalandi sínu Króatíu eftir að hann stýrði Króötum til sigurs á HM 2003 og á ÓL 2004, hefur...
Íslenska landsliðið í handknattleik karla vann Egypta, 31:30, í fyrri vináttuleiknum í Kaíró í dag. Orri Freyr Þorkelsson skoraði sigurmarkið mínútu fyrir leikslok og var það í eina skiptið sem Ísland var yfir í síðari hálfleik. Íslenska liðið skoraði...
Arnar Freyr Arnarsson landsliðsmaður í handknattleik flytur sig um set innan Þýskalands í sumar frá MT Melsungen til Flensburg-Handewitt. Félagið tilkynnti um komu Arnars Freys í dag. Samningurinn er til eins árs. Arnar Freyr stendur á þrítugu og hefur...
Signý Harðardóttir hefur skrifað undir nýjan samning við Fjölni. Hún er 18 ára gömul og leikur sem vinstri hornamaður.
„Ég er mjög spennt fyrir komandi tímabili og að halda áfram að leggja mig fram um að gera betur í dag...
Patrekur Guðni Þorbergsson, markvörður HK, hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt. Nýi samningurinn gildir til næstu þriggja ára, til sumarsins 2029.
Patrekur Guðni er 19 ára gamall og hefur leikið með HK alla tíð. Hann hefur æft með...
Þýska félagið HSG Wetzlar heldur áfram að hugsa til framtíðar hjá karlaliði sínu, þar sem Rúnar Sigtryggsson er þjálfari. Spánverjinn Marti Soler gengur til liðs við félagið í sumar frá MT Melsungen.
Soler er 23 ára vinstri hornamaður og sterkur...
Alexandra Líf Arnarsdóttir, fyrirliði Hauka og landsliðskona, hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt. Verður hún því áfram á Ásvöllum næstu árin, þó ekki komi fram í tilkynningu handknattleiksdeildar Hauka hve langur samningurinn er.
Alexandra Líf er 25 ára...
Bryndís Hulda Ómarsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélagið sem gildir til sumarsins 2029. Hún var á lokahófi handknattleiksdeildar Stjörnunnar fyrr í mánuðinum valin efnilegasti leikmaður liðsins.
Bryndís Hulda er 18 ára gömul og leikur í stöðu...
Portúgalski landsliðsmaðurinn Victor Iturriza hefur ákveðið að flytja á ný til Evrópu eftir eins árs úthald hjá Kuwait SC. Iturriza leikur á næstu leiktíð með Dinamo Búkarest en landi hans og landsliðsþjálfari Portúgal, Paulo Perreira, er þjálfari rúmenska meistaraliðsins.
Erlend...