Okkar fólk úti

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Donni er á réttri leið

Landsliðsmaðurinn Kristján Örn Kristjánsson, Donni, er að sækja í sig veðrið eftir að hafa meiðst á ökkla á æfingu með félagsliði sínu, PAUC-Aix í Frakklandi, fyrir um hálfum mánuði. „Ég var einmitt á fyrstu handboltaæfingunni minni í gær eftir...

Hægari bati en vonir stóðu til um

„Batinn hefur verið mjög hægur hjá mér, miklu hægari en ég átti von á,“ sagði Bjarni Ófeigur Valdimarsson, handknattleiksmaður við handbolta.is í morgun. Bjarni Ófeigur, sem gekk til liðs við sænska úrvalsdeildarliðið Skövde frá FH í lok nóvember, glímir...

Molakaffi: Daníel Freyr, Bjarni, Katla og Lacrabère

Daníel Freyr Andrésson náði sér ekki á strik í gærkvöld þegar lið hans Guif frá Eskilstuna tapaði fyrir Ystads IF, 32:29, á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Daníel Freyr varði eitt skot áður en hann var kallaður af...
- Auglýsing -

Daníel Þór og Rúnar léku vel – vonin lifir

Íslendingaliðið Ribe-Esbjerg á enn von um að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum um danska meistaratitilinn í handknattleik eftir öruggan sigur á Fredericia, 37:30, í viðureign liðanna í Fredericia kvöld. Rúnar Kárason lék vel, eins og svo oft áður á...

Hituðu upp klæddir úlpum, vettlingum og húfum

Aðstæður eru fremur óburðugar í Boro Čurlevski-íþróttahöllinni í Bitola í Norður-Makedóníu þar sem Viktor Gísli Hallgrímsson, landsliðsmarkvörður í handknattleik, og samherjar hans í danska úrvalsdeildarliðinu GOG mæta Eurofarm Pelister í Evrópu í D-riðli Evrópudeildarinnar í handknattleik í kvöld. Svo...

Aftur í liði umferðarinnar

Viggó Kristjánsson er í liði 18. umferðar í þýsku 1. deildinni í handknattleik sem tilkynnt var í gær. Þetta er að minnsta kosti í annað sinn á leiktíðinni sem Viggó er valinn í lið umferðarinnar á leiktíðinni auk...
- Auglýsing -

Molakaffi: Göppingen staðfestir, áfram hjá Fram, Bitter flytur, frá Noregi til Rúmeníu

Göppingen staðfesti í gærkvöld að Gunnar Steinn Jónsson hafi skrifað undir samning við félagið sem gildir til loka júní. Fyrr í gær hafði Ribe-Esbjerg greint frá því að Gunnar hafi kvatt félagið eftir þriggja ára veru og væri á...

Gunnar Steinn sagður á leið til Göppingen

Handknattleiksmaðurinn Gunnar Steinn Jónsson hefur tekið saman föggur sínar og yfirgefið danska úrvalsdeildarliðið Ribe-Esbjerg. Frá þessu er greint á heimasíðu félagsins í dag. Vísir.is hefur heimildir fyrir að Gunnar Steinn gangi til liðs við Göppingen í þýsku 1. deildinni....

Úr leik í nokkrar vikur

Alexander Petersson leikur ekki með Flensburg á næstunni eftir að hann meiddist á æfingu fyrir helgina áður en liðið hélt til leiks á útivelli við Hannover-Burgdorf sem fram fór í gær. Alexander mun hafa tognað á læri, eftir því...
- Auglýsing -

Molakaffi: Teitur Örn og Ólafur, Sigvaldi og Jensen, aftur frestað og sigur í Sviss

Teitur Örn Einarsson skoraði þrjú mörk í sjö skotum og Ólafur Andrés Guðmundsson eitt í tveimur skotum þegar lið þeirra, IFK Kristianstad vann Helsingborg, 27:23, á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í gær. Kristianstad situr í sjöunda sæti deildarinnar.  Bjarni Ófeigur...

Arnar kominn í úrslit bikarsins

Neistin, sem Arnar Gunnarsson þjálfar, komst í dag í úrslit í færeysku bikarkeppninni í handknattleik karla. Neistin vann KÍF, 29:26, í síðari undanúrslitaviðureign liðanna í Þórshöfn í dag. Neistin vann einnig fyrri leikinn, 24:23, í Kollafirði um miðja vikuna....

Ómar Ingi var óstöðvandi

Ómar Ingi Magnússon skoraði 11 mörk í dag þegar SC Magdeburg vann nauman sigur á GWD Minden í hörkuspennandi leik á heimavelli, 29:28, í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Níu marka sinna skoraði Ómar Ingi úr vítaköstum þar sem...
- Auglýsing -

Molakaffi: Díana Dögg á sigurbraut, Aron Dagur, Óðinn Þór, Íslendingatríóið í Aue vann og stórsigur hjá Aroni

Díana Dögg Magnúsdóttir var allt í öllu þegar Zwickau  vann Freiburg, 29:21, á útivelli í þýsku 2. deildinni í handknattleik í gær. Hún skoraði þrjú mörk, vann vítaköst átti nokkrar stoðsendingar í leiknum auk þess að vera aðsópsmikil í...

Verður frá um skeið eftir aðgerð á hné

Hildigunnur Einarsdóttir, handknattleikskona hjá þýska 1. deildarliðinu Bayer Leverkusen gekkst undir aðgerð á hné í gær og verður frá keppni næstu vikur af þeim sökum. „Það var rifa í liðþófanum sem þurfti að pússa niður. Það var aðeins meiri skemmd...

Grétar Ari stóð fyrir sínu

Markvörðurinn Grétar Ari Guðjónsson stóð svo sannarlega fyrir sínu í kvöld þegar Nice vann Angers á útivelli, 29:25, i frönsku B-deildinni í handknattleik. Grétar Ari varði 13 skot, þar af eitt vítakast, og var með 36% hlutfallsmarkvörslu þegar leikurinn...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -