Handknattleiksmaðurinn Ihor Kopyshynskyi er án samnings eftir að Afturelding sagði upp samningi sínum við hann í lok leiktíðar. Frá þessu er greint á Handkastinu. Ihor, sem er 35 ára gamall fékk íslenskan ríkisborgararétt fyrir ári, segist um þessar mundir...
Systkinin Sandra Erlingsdóttir og Andri Erlingsson voru valin bestu leikmenn meistaraflokksliðs ÍBV í lokahófi handknattleiksdeildar sem fram fór í gærkvöld. Eyjafréttir segja frá. Alexandra Ósk Viktorsdóttir og Elís Þór Aðalsteinsson fengu fréttabikarana, sem efnilegustu leikmenn ÍBV. Birna Berg Haraldsdóttir...
Sænska handknattleikskonan Sara Odden hefur framlengt samning sinn við Hauka. Sara hefur verið ein traustasta stoð Haukaliðsins undanfarin ár. Hún gekk fyrst til liðs við Hauka haustið 2019 og lék með liðinu í 3 ár. Sara reyndi hún fyrir...
Daníel Karl Gunnarsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Stjörnuna. Daníel Karl er vinstri hornamaður auk þess að geta brugðið sér í allra kvikinda líki þegar kemur að varnarleik.
Daníel Karl er uppalinn á Selfossi en hefur undanfarin...
Davíð Georgsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá ÍR til næstu tveggja ára. Hann tekur við af Grétari Áka Andersen sem lét af störfum á dögunum. Davíð til halds og trausts verður hinn vel þekkti handknattleiksmaður Björgvin Þór...
Handknattleiksdeild Víkings hefur samið við Þorgeir Bjarka Davíðsson um að leika með meistaraflokki karla á komandi tímabili í Olísdeild karla. Þorgeir kemur til félagsins frá uppeldisfélagi sínu Gróttu sem hann hefur leikið með síðustu tvö ár eftir að hafa...
Lokahóf meistaraflokka Víkings Reykjavíkur í handknattleik fór fram miðvikudagskvöldið 13. maí í veislusalnum í Virkinu í Safamýri þar sem leikmenn og þjálfarar komu saman og fögnuðu farsælu tímabili. Valgerður Elín Snorradóttir var valin besti leikmaður kvennaliðsins og Ísak Óli...
Arnar Pétursson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, er ekki á eitt sáttur við framkomu stuðningsmannasveitar ÍBV í úrslitakeppni Olísdeildar kvenna. Hafdís Renötudóttir, markvörður Vals, og Embla Steindórsdóttir, leikmaður Hauka, urðu fyrir fordómum er lið þeirra komu í heimsókn í íþróttamiðstöð Vestmannaeyja...
Ágúst Guðmundsson er genginn til liðs við FH frá HK. Skrifar hann undir þriggja ára samning við FH, sem gildir til sumarsins 2029.
Ágúst er tvítug hægri skytta sem hefur verið í stóru hlutverki hjá uppeldisfélagi sínu HK undanfarin tímabil...
Laufey Helga Óskarsdóttir, bráðefnilegur leikmaður fjórfaldra meistara Vals, hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt. Hún er einungis 16 ára gömul en var í stóru hlutverki hjá Val á nýafstöðnu tímabili.
Laufey Helga er leikstjórnandi og vinstri skytta sem...
Dagur Sverrir Kristjánsson hefur samið við Stjörnuna um að leika með liðinu næstu tvö tímabil. Kemur hann frá Vinslövs HK í Svíþjóð.
Dagur Sverrir er 25 ára örvhent skytta sem hefur leikið í Svíþjóð undanfarin þrjú ár. Fyrstu tvö árin...
Handknattleiksdeild Hauka hefur samið við Hrafnhildi Önnu Þorleifsdóttur markvörð um að leika með liðinu næstu árin. Hrafnhildur Anna kemur til liðs við Hauka frá Stjörnunni þar sem hún hefur leikið undanfarin tvö tímabil.
Hrafnhildur Anna, sem er 26 ára, er...
„Þetta úrslitaeinvígi braut mig. Ég mætti samt. Íslandsmeistarar 2026,“ skrifar Hafdís Renötudóttir markvörður Vals og íslenska landsliðsins á Instagram-síðu sína í gær um þá fordóma sem hún mætti í öðrum úrslitaleik ÍBV og Vals um Íslandsmeistaratitilinn í Vestmannaeyjum. Gerð...
Guðmunda Auður Guðjónsdóttir hefur gert samning við handknattleiksdeild Hauka um að leika með liðinu næstu árin. Guðmunda Auður, sem verður 19 ára í júlí, kemur til liðs við Hauka frá Stjörnunni þar sem hún hefur leikið síðustu tvö tímabil.
Guðmunda...
Carlos Martin Santos og handknattleiksdeild Umf. Selfoss hafa komist að samkomulagi um starfslok hans sem þjálfari meistaraflokks karla. Er þetta gert að ósk Carlos, eftir því sem segir í tilkynningu handknattleiksdeildar Umf. Selfoss í kvöld. Ekki kemur fram í...