- Auglýsing -
- Auglýsing -

ÍBV skorar á HSÍ að setja velferð leikmanna í fyrsta sæti og fresta leik

- Auglýsing -

ÍBV sendi frá sér tilkynningu síðdegis þar sem lýst er mikill óánægju með ósveigjanleika og skorti á skilningi af hálfu HSÍ og handknattleiksdeildar Hauka sem vilja ekki koma til móts við ÍBV vegna mikils álags sem verður á leikmönnum kvennaliðs félagsins á næstu dögum. Útlit er fyrir að ÍBV leiki fjóra leiki á átta dögum, þar af tvo leiki í Evrópukeppni suður á Madeira.


Segir í tilkynningunni forráðamanna ÍBV að skellt hafi verið skollaeyrum við óskum þeirra um að leik Hauka og ÍBV verði frestað fram yfir áramót í stað þess að leika hann á miðvikudaginn, daginn áður en haldið verður út til Madeira.

Stjórnendur ÍBV segja að svör HSÍ séu m.a. þau að félagið hafi kosið að taka þátt í Evrópukeppni og þannig mátt vera ljóst að þátttökunni fylgdi aukið álag. Skorar ÍBV á HSÍ að endurskoða afstöðu sína og setja velferð leikmanna í fyrsta sæti.

Undir áhyggjur ÍBV tekur Davíð Egilsson, sérfræðingur í heimilislækningum og yfirlæknir heilsugæslunnar í Vestmannaeyjum eins og sjá má í tilkynningum hér fyrir neðan.

Tilkynning frá ÍBV ÍÞróttafélagi-handknattleiksdeild 
ÍBV Íþróttafélag -handknattleiksdeild hefur sýnt þann metnað að taka þátt í Evrópukeppni þegar að  meistaraflokkar félagsins hafa áunnið sér slíkan rétt. Teljum við slíka þátttöku handknattleik á Íslandi til  framdráttar og án efa eru flest félög okkur sammála um það. 

Nú kemur það hins vegar í bakið á okkur að sýna slíkan metnað. ÍBV á tvo leiki í Evrópukeppni á n.k.  laugardag og sunnudag þann 11. og 12. nóv. Liðið flýgur út á fimmtudeginum 9. nóv. og kemur síðan til  baka til Eyja á miðvikudaginn 15. nóv. og á samkvæmt áætlun að leika á fimmtudeginum þar á eftir. 

Samkvæmt áætlun á kvennalið ÍBV einnig að leika gegn Haukum áður en farið er út í Evrópukeppnina. ÍBV  hefur óskað eftir því að sá leikur frestist þar til eftir áramót. HSÍ og Knattspyrnufélagið Haukar hafa neitað  því að verða við þessari beiðni ÍBV og ætlast til þess að ÍBV leiki gegn Haukum á þriðjudag/miðvikudag  áður en farið er í flug til Madeira. Flug til Madeira eru tveir leggir hvora leið.  

Staðan er því þannig núna að ætlast er til þess af HSÍ að kvennalið ÍBV leiki 4 leiki á 8 dögum og þar af 2  evrópuleiki ásamt því að fljúga fjórar flugferðir á þessum 8 dögum.  
Við hjá ÍBV Íþróttafélagi -handknattleiksdeild teljum þetta skipulag ekki ganga. Þau rök frá HSÍ að ÍBV hafi  sjálft valið sér að taka þátt í Evrópukeppni eru að okkar mati dapurleg skilaboð til þeirra liða sem vilja hag  íþróttarinnar sem bestan og metnaðarfyllstan. Þá hlýtur það að teljast stórt spurningamerki hvort slíkt  álag á leikmenn sé réttlætanlegt og HSÍ getur ekki skorast undan að leggja mat á það. Karlalið Vals var í  svipaðri stöðu í fyrra og þá voru leikir þeirra færðir til að því að við best vitum. Gildir annað um kvennalið  íþróttarinnar. 
Við skorum á HSÍ að hafa velferð og heilsu leikmanna í öndvegi og ekki að tefla á tvær hættur og taka  óþarfa áhættu þegar að lausnir eru í boði.  

Vestmannaeyjum, 4. nóvember  
ÍBV Íþróttafélag-handknattleiksdeild. 

Ég tek undir áhyggjur forráðamanna ÍBV af fyrirhuguðu leikjaplani meistaraflokks kvenna ÍBV  í handknattleik næstu vikuna. Mikil umræða hefur verið um álag íþróttafólks og sérstaklega  kvenkyns íþróttamanna með tilliti til meiðslahættu undanfarin ár. Að ætla sér að spila 4  keppnisleiki á innan við viku á hæsta stigi íþróttarinnar er að mínu mati út í hött, svo vægt sé  til orða tekið. Þar að auki er framundan ferðalag milli landa til að spila evrópuleiki, og  rannsóknir sýna að ferðalög auka einnig áhættu á meiðslum íþróttamanna. Ég hef því miklar áhyggjur af liðinu og hvernig það mun koma út úr leikjatörn sem þessari. Ábyrgð HSÍ er  mikil ef upp koma alvarleg meiðsli í hópnum. 

Hagsmunir leikmanna eiga alltaf að vera í forgangi þegar teknar eru ákvarðanir um skipulag  og álag. Ég skora því á HSÍ að endurskoða ákvörðun um leikjaskipulag næstu daga og taka  tillit til athugasemda ÍBV. 

Virðingarfyllst, 
Davíð Egilsson, 
Sérfræðingur í heimilislækningum, 
Yfirlæknir heilsugæslunni í Vestmannaeyjum. 
Læknir ÍBV knattspyrnu og handknattleiksdeilda. 
Læknir U-21 árs landsliðs íslands í knattspyrnu."

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -