Fram undan er Íslendingaslagur um sænska meistaratitilinn í handknattleik kvenna eftir að IK Sävehof, með Elínu Klöru Þorkelsdóttur innanborðs, og Skara HF, sem Lena Margrét Valdimarsson leikur með, unnu undanúrslitarimmur sína í kvöld. IK Sävehöf lagði Höörs HK H 65 í þremur leikjum og Skara HF, sem varð meistari í fyrsta sinn fyrir ári, vann Önnereds, 3:1, í vinningum talið.
Elín Klara var markahæst hjá IK Sävehof í 10 marka sigri á heimavelli gegn Höörs HK H 65, 34:24, í kvöld. Eitt marka sinna skoraði Elín Klara úr vítakasti. Hún gaf einnig tvær stoðsendingar.
Lena Margrét skoraði ekki fyrir Skara HF í sigri á Önnereds, 23:19, á heimavelli. Hún gaf tvær stoðsendingar.
Fyrsti úrslitaleikur IK Sävehof og Skara HF fer fram í Partille mánudaginn 18. maí. Vinna þarf þrjá leiki til þess að verða sænskur meistari.



