- Auglýsing -
Handknattleiksdeild HK og Katrín Hekla Magnúsdóttir hafa skrifað undir nýjan tveggja ára samning. Katrín Hekla er vinstri hornamaður, fædd árið 2005 og spilaði í yngri flokkum hjá HK.
„Katrín Hekla hefur leikið með meistaraflokki félagsins síðastliðin 5 ár. Síðastliðin þrjú ár hefur hún verið fastamanneskja í liði HK sem mun spila í Olís-deildinni á komandi tímabili. Þrátt fyrir að vera einungis tvítug er Katrín Hekla ein af reynslumeiri leikmönnum HK sem Handknattleiksdeild HK er mjög ánægð með að hafa áfram í herbúðum sínum,“ segir í tilkynningu HK.
- Auglýsing -



