- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Skórnir endanlega komnir á hilluna hjá Sunnu

- Auglýsing -

Sunna Jónsdóttir, þrautreyndur leikmaður Fram og fyrirliði íslenska landsliðsins um skeið, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Staðfesti hún ákvörðun sína í samtali við Handkastið.

„Skórnir komnir lengst upp og innst inn í hillu upp á háalofti,“ sagði Sunna í léttum dúr við Handkastið.


Hún lauk ferlinum í síðustu viku er Fram féll úr leik gegn Val í undanúrslitum Olísdeildarinnar. Sunna hafði gengið til liðs við Fram fyrir yfirstandandi tímabil eftir sjö ára dvöl hjá ÍBV þar á undan, þar sem hún var kjölfesta í Eyjaliðinu. Lék Sunna 11 leiki í deild og úrslitakeppni fyrir Fram í vetur.

Hún er 37 ára gömul og hafði áður leikið með Fram hér á landi, frá 2011 til 2013 þegar liðið var með bækistöðvar í Safamýri. Sunna lék sem atvinnumaður í fimm ár, frá 2013 til 2018, með BK Heid og Skara í Svíþjóð ásamt Skrim Kongsberg og Halden HK í Noregi.

Sunna ólst upp hjá Fylki, fór þaðan til Fram árið 2011, og lék alls 99 A-landsleiki þar sem hún tók þátt á þremur stórmótum; EM 2010, HM 2023 og EM 2024. Var Sunna landsliðsfyrirliði á tveimur síðari mótunum.


Varð hún Íslandsmeistari með Fram árið 2013 og deildarmeistari með ÍBV árið 2023, þar sem Sunna varð einnig bikarmeistari sama ár.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -