- Auglýsing -
Stjarnan og Grótta mætast í þriðja sinn í umspili Olísdeildar kvenna í dag. Að þessu sinni verður leikið í Hekluhöllinni í Garðabæ. Stefnt er að því að flautað verði til leiks klukkan 16.
Liðin hafa unnið sinn leikinn hvort en það lið sem tekst að vinna þrisvar öðlast sæti í Olísdeildinni á næstu leiktíð.
Grótta vann fyrstu viðureign liðanna, 23:21. Stjarnan svaraði fyrir sig í Hertz-höll Seltirninga á sunnudaginn, 26:22.
Leikurinn verður sendur út á Handboltapassanum.
- Auglýsing -


