Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handknattleik hefur valið þá 18 leikmenn sem leika munu fyrir hönd Íslands á HM 2025 sem fram fer í Króatíu, Danmörku og Noregi í næsta mánuði. Landsliðið kemur saman til æfinga hér á landi 2. janúar og heldur af landi brott 8. janúar til Svíþjóðar. Þar leikur landsliðið tvo vináttuleiki, í Kristianstad 9. janúar og í Malmö 11. janúar.
Fyrsti leikurinn á HM verður gegn landsliði Grænhöfðaeyja fimmtudaginn 16. janúar kl. 19.30.
Þrír leikmenn íslenska hópsins hafa ekki áður tekið þátt í HM: Einar Þorsteinn Ólafsson, Orri Freyr Þorkelsson og Þorsteinn Leó Gunnarsson.
Ísland verður í G-riðli á HM sem leikinn verður Zagreb í Króatíu á HM í G-riðli og eru mótherjar Íslands, Kúba, Slóvenía og Grænhöfðaeyjar.
HM-hópur Íslands er skipaður eftirtöldum leikmönnum:
Markverðir:
Björgvin Páll Gústavsson, Valur (273/24).
Viktor Gísli Hallgrímsson, Wisla Plock (60/1).
Aðrir leikmenn:
Bjarki Már Elísson, Veszprém (118/401).
Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (16/41).
Aron Pálmarsson, Veszprém (177/674).
Elvar Örn Jónsson, MT Melsungen (79/183).
Þorsteinn Leó Gunnarsson, FC Porto (5/10).
Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg (60/139).
Haukur Þrastarson, Dinamo Bucaresti (35/50).
Janus Daði Smárason, Pick Szeged (86/146).
Teitur Örn Einarsson, Vfl Gummersbach (36/36).
Viggó Kristjánsson, SC DHfK Leipzig (59/165).
Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (42/130).
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (76/214).
Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (100/101).
Einar Þorsteinn Ólafsson, Fredericia HK (14/5).
Elliði Snær Viðarsson, Vfl Gummersbach (50/109).
Ýmir Örn Gíslason, Frisch Auf Göppingen (92/36).