- Auglýsing -
Daníel Karl Gunnarsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Stjörnuna. Daníel Karl er vinstri hornamaður auk þess að geta brugðið sér í allra kvikinda líki þegar kemur að varnarleik.
Daníel Karl er uppalinn á Selfossi en hefur undanfarin tímabil leikið með Stjörnunni. Á nýliðnu tímabili lék Daníel Karl 19 leiki með Stjörnunni í Olísdeildinni og skoraði 41 mark.
- Auglýsing -


