- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Naumt tap í fyrsta undanúrslitaleiknum

- Auglýsing -

Birgir Steinn Jónsson og liðsfélagar í IK Sävehof töpuðu með tveggja marka mun fyrir Malmö HK, 31:29, í fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gær. Leikið var í Malmö. Næsti leikur fer fram í Partille á miðvikudaginn. Vinna þarf þrjár viðureignir til þess að komast í úrslit.


Birgir Steinn skoraði fjögur mörk fyrir Sävehof. Malmö-liðið var sex mörkum yfir í hálfleik, 18:12. Birgir Steinn og félagar sóttu töluvert í sig veðrið í síðari hálfleik en tókst ekki að brúa bilið að fullu.

Eins og handbolti.is hefur áður sagt frá töpuðu deildarmeistarar IFK Kristianstad á heimavelli fyrir Alingsås í fyrstu viðureign liðanna í hinni rimmu undanúrslita á fimmtudaginn, 43:38. Liðin mætast aftur í Alingsås á miðvikudaginn.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -