Síðar í dag kemur í ljós hverjir verða andstæðingar íslenska landsliðsins í undankeppni Evrópumóts karla í handknattleik sem fram fer í Portúgal, Spáni og Sviss í janúar 2028. Dregið verður í Lissabon, höfuðborg Portúgal, og verður hafist handa klukkan 18. Nöfn 32 þjóða verða í skálunum fjórum sem dregið verður upp úr í átta riðla. Ísland er í efsta styrkleikaflokki af fjórum.
Undankeppnin hefst í byrjun nóvember og lýkur í maí 2027. Má vænta þess að íslenska landsliðið leiki á heimavelli í fyrstu umferð 4. eða 5. nóvember.
Handbolti.is fylgist með framvindu dráttarins á textalýsingu í kvöld.
Styrkleikaflokkarnir:
Flokkur 1: Króatía, Frakkland, Þýskaland, Ungverjaland, Ísland, Noregur, Slóvenía, Svíþjóð.
Flokkur 2: Austurríki, Tékkland, Færeyjar, Ítalía, Norður-Makedónía, Holland, Pólland, Serbía.
Flokkur 3: Belgía, Bosnía & Herzegóvína, Georgía, Grikkland, Litáen, Svartfjallaland, Rúmenía, Úkraína.
Flokkur 4: Eistland, Finnland, Ísrael, Kósovó, Lettland, Lúxemborg, Slóvakía, Tyrkland.
Ísland verður dregið á móti einni þjóð úr öðrum, þriðja og fjórða flokki.
Leikdagar undankeppninnar:
1. umferð: 4. og 5. nóvember 2026.
2. umferð: 7. og 8. nóvember 2026.
3. umferð: 10. og 11. mars 2027.
4. umferð: 13. og 14. mars 2027.
5. umferð: 5. og 6. maí 2027.
6. umferð: 9. maí 2027 - allir leikir hefjast klukkan 16.



