Íslenska karlalandsliðið mætir því egypska í fyrri vináttulandsleik þjóðanna í Kaíró í Egyptalandi klukkan 13 í dag. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV.
Þrír nýliðar binda vonir við að spila sínu fyrstu A-landsleiki. FH-ingarnir og nafnarnir Jón Bjarni Ólafsson og Jón Þórarinn Þorsteinsson eru þeirra á meðal ásamt Tryggva Þórissyni hjá Elverum Håndball í Noregi.
Þrír nýliðar í Kaíróhópnum – margir reyndir verða ekki með
Liðin mætast öðru sinni á föstudag, einnig í Kaíró. Sá leikur hefst klukkan 16 og verður sömuleiðis sýndur í beinni útsendingu á RÚV.
Vonast til þess að fleiri banki á landsliðsdyrnar eftir Kaíróferðina
Leikur dagsins
Vináttuleikur A-landsliðs karla:
Kaíró: Egyptaland – Ísland kl. 13 – Sýndur í beinni útsendingu á RÚV.



