- Auglýsing -
Það er svo sannarlega á brattann að sækja hjá Íslendingunum og liðum þeirra í úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik karla. Bæði IFK Kristianstad og IF Sävehof hafa tapað tveimur fyrstu leikjum sínum í undanúrslitum. IFK tapaði fyrir Alingsås á útivelli í kvöld, 37:35, eftir framlengingu og Sävehof steinlá á heimavelli, 39:27, fyrir Malmö.
Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði sex mörk fyrir IFK Kristianstad sem varð deildarmeistari í vor.
Birgir Steinn Jónsson skoraði tvö mörk fyrir Sävehof í tapinu á heimavelli.
Þriðja viðureign IFK Kristianstad og Alingsås fer fram í Kristianstad Arena á laugardaginn. Sävehof sækir Malmö heim á sunnudag.
- Auglýsing -


