Arnar Pétursson landsliðsþjálfari heldur sig við sömu leikmenn í kvöld gegn Úkraínu og mættu Hollendingum í fyrrakvöld í fyrstu umferð Evrópumóts kvenna í handknattleik. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, Kristianstad HK, og Katrín Tinna Jensdóttir, ÍR verður áfram utan leikmannahópsins.
Leikur Íslands og Úkraínu hefst í Ólympíuhöllinni í Innsbruck klukkan 19.30. Handbolti.is verður á staðnum og fylgist með framvindunni í textalýsingu og gerir síðan viðureignina upp í leikslok.
Ísland og Úkraína töpuðu viðureignum sínum í fyrstu umferð Evrópumótsins á föstudaginn.
Leikmenn Íslands í kvöld:
Markverðir:
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Aarhus (66/2).
Hafdís Renötudóttir, Valur (66/4) .
Aðrir leikmenn:
Andrea Jacobsen, HSG Blomberg-Lippe (59/104) .
Berglind Þorsteinsdóttir, Fram (31/6) .
Dana Björg Guðmundsdóttir, Volda (5/10) .
Díana Dögg Magnúsdóttir, HSG Blomberg-Lippe (59/77) .
Elín Klara Þorkelsdóttir, Haukar (19/59) .
Elín Rósa Magnúsdóttir, Valur (26/51)
Elísa Elíasdóttir, Valur (20/16) .
Katrín Anna Ásmundsdóttir, Grótta (7/12) .
Perla Ruth Albertsdóttir, Selfoss (55/126) .
Rut Arnfjörð Jónsdóttir, Haukar (120/245) .
Steinunn Björnsdóttir, Fram (54/83) .
Sunna Jónsdóttir, ÍBV (97/66) .
Thea Imani Sturludóttir, Valur (85/185) .
Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram (143/408).