Elvar Ásgeirsson skoraði fimm mörk, gaf tvær stoðsendingar og var einu sinni vikið af leikvelli er Ribe-Esbjerg tapaði stórt fyrir HØJ, 39:25, í umspili dönsku úrvalsdeildarinnar í gær. Ribe-Esbjerg var á grænni grein fyrir leikinn og heldur sæti sínu...
Skanderborg AGF, lið Kristjáns Arnar Kristjánssonar Donna, vann TTH Holstebro, 37: 30, í Holstebro í kvöld í 3. umferð annars af tveimur riðlum úrslitakeppninnar um danska meistaratitilinn í handknattleik. Stendur Skanderborg þar með afar vel að vígi að hálfnaðri...
Stjarnan jafnaði metin í einvíginu við Gróttu í umspili Olísdeildar kvenna í handknattleik í dag, 26:22. Staðan var 13:10 Stjörnunni í hag að loknum fyrri hálfleik. Leikið var í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi.
Hvort lið hefur þar með unnið einn leik...
Bjarki Már Elísson var markahæstur leikmanna One Veszprém í dag þegar liðið varð ungverskur bikarmeistari í handknattleik með öruggum sigri á Tatabánya, 34:22, í úrslitaleik í keppnishöllinni í Györ. Bjarki Már lék allan leikinn, jafnt í vörn sem sókn....
Bergischer HC, sem Arnór Þór Gunnarsson fyrrverandi landsliðsmaður þjálfar við annan mann, fékk silfurverðlaun í þýsku bikarkeppninni í handknattleik í dag. Eftir sigur á toppliði þýsku 1. deildarinnar, SC Magdeburg, reyndist Füchse Berlin ofjarl Bergischer HC í úrslitaleiknum í...
Handknattleiksdeild HK og Katrín Hekla Magnúsdóttir hafa skrifað undir nýjan tveggja ára samning. Katrín Hekla er vinstri hornamaður, fædd árið 2005 og spilaði í yngri flokkum hjá HK.
„Katrín Hekla hefur leikið með meistaraflokki félagsins síðastliðin 5 ár. Síðastliðin þrjú...
Orri Freyr Þorkelsson skoraði sex mörk í öðrum sigurleik Sporting á Martimo í undanúrslitum portúgölsku bikarkeppninnar í handknattleik í gær, 42:28.
Stiven Tobar Valencia var ekki í leikmannahópi Benfica þegar liðið vann Águas Santas, 36:22, í síðari undanúrslitaleik liðanna í...
Jökull Blöndal Björnsson og Patrekur Smári Arnarsson hafa framlengt samningum sínum við handknattleiksdeild ÍR til ársins 2029. Báðir spiluðu þeir lykilhlutverk í ÍR-liðinu á nýafstöðnu tímabili í Olísdeild karla en ÍR féll úr deildinni. Báðir tóku þeir þátt í...
Þórhildur Braga Þórðardóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild HK og leikur þar með í Olísdeildinni á næstu leiktíð eftir tveggja ára fjarveru. HK vann Grill 66-deildina í vor.
Þórhildur Braga er uppalin í HK en gekk...
Lærisveinar Arnórs Þórs Gunnarssonar í Bergischer HC gerðu sér lítið fyrir og unnu Evrópumeistara SC Magdeburg í undanúrslitaleik þýsku bikarkeppninnar í kvöld, 31:30. Úrslitin réðust ekki fyrr en að lokinni framlengingu og vítakeppni sem Bergischer HC vann, 5:4.
Magdeburg...
ÍBV jafnaði metin við Hauka í undanúrslitarimmu liðanna í úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handknattleik í dag. Eyjaliðið skoraði fjögur mörk leiksins í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum og vann með eins marks mun, 29:28. Kristrún Ósk Hlynsdóttir skoraði sigurmarkið nokkrum...
Valur er kominn í öndvegisgóða stöðu í undanúrslitaeinvíginu við Fram eftir öruggan sigur í annarri viðureign liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handknattleik í Lambhagahöllinni í dag, 27:18. Þar með vantar Valsliðið aðeins einn vinning til að binda...
Hér fyrir neðan er leikjadagskrá úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handknattleik 2026. Dagskráin verður uppfærð eftir því sem úrslitakeppninni vindur fram með úrslitum leikja, leikdögum og leiktímum.
Leikir úrslitakeppninnar verða sendir út á Handboltapassanum og valdar viðureignir í opinni dagskrá í...
Bjarki Már Elísson og liðsfélagar í One Veszprém leika á morgun til úrslita í ungversku bikarkeppninni í handknattleik. Vítakeppni þurfti til þess að knýja fram sigur í undanúrslitaleik One Veszprém og Pick Szeged í dag. Úrslitin réðust eftir að...
FH lagði Hauka í fjórðu viðureign Hafnarfjarðarliðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handknattleik í gærkvöld, 36:35. Lokasekúndur leiksins voru dramatískar en Daníel Freyr Andrésson markvörður FH sá til þess að ekki kæmi til framlengingar með því að verja skot...