- Auglýsing -
- Auglýsing -

Efst á baugi

- Auglýsing -

Molakaffi: Stemning í Færeyjum, tómahljóð er víða, Cupic

Uppselt er á viðureign Færeyinga og Bosníumanna í undankeppni HM karla sem fram fer í þjóðarhöll Færeyinga í Þórshöfn í kvöld. Flautað verður til leiks klukkan 18. Vel á fjórða þúsund Færeyinga tryggðu sér aðgöngumiða. Síðustu miðarnir seldust í...

Tveggja ára samningur Daníels Karls við Stjörnuna

Daníel Karl Gunnarsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Stjörnuna. Daníel Karl er vinstri hornamaður auk þess að geta brugðið sér í allra kvikinda líki þegar kemur að varnarleik. Daníel Karl er uppalinn á Selfossi en hefur undanfarin...

Alfreð varð að játa sig sigraðan í Kaupmannahöfn

Þýska landsliðið, undir stjórn Alfreðs Gíslasonar, tapaði með átta marka mun fyrir Evrópumeisturum Danmerkur, 36:28, í vináttulandsleik í Royal Arena í Kaupmannahöfn í kvöld. Danir, sem eru kampakátir með úrslitin, höfðu átta marka forskot þegar fyrri hálfleikur var að...
- Auglýsing -

Annar góður sigur á Egyptum í Kaíró

Íslenska landsliðið vann það egypska öðru sinni í vináttuleik í handknattleik karla í Kaíró í dag, 30:27, eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 13:11. Íslenska landsliðið var með yfirhöndina frá upphafi til enda og...

Davíð tekur við af Grétari Áka – Björgvin verður til halds og trausts

Davíð Georgsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá ÍR til næstu tveggja ára. Hann tekur við af Grétari Áka Andersen sem lét af störfum á dögunum. Davíð til halds og trausts verður hinn vel þekkti handknattleiksmaður Björgvin Þór...

Reyndur hornamaður hefur samið við Víking

Handknattleiksdeild Víkings hefur samið við Þorgeir Bjarka Davíðsson um að leika með meistaraflokki karla á komandi tímabili í Olísdeild karla. Þorgeir kemur til félagsins frá uppeldisfélagi sínu Gróttu sem hann hefur leikið með síðustu tvö ár eftir að hafa...
- Auglýsing -

Gísli Þorgeir getur slegið met í Meistaradeildinni

Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikmaður SC Magdeburg og íslenska landsliðsins, stendur frammi fyrir því að geta slegið eftirsóknarvert met í Meistaradeild Evrópu. Hann hefur tvívegs unnið keppnina með Magdeburg og í bæði skiptin verið valinn besti leikmaður úrslitahelgarinnar. Raunar eru það...

Var frá í átta mánuði vegna veirusýkingar

Erfitt tímabil er senn að baki hjá Theu Blomst, fyrirliða IK Sävehof, sem sneri nýverið aftur á völlinn eftir átta mánaða fjarveru. Skæð veirusýking olli fjarverunni löngu. „Þetta var veira frá helvíti,“ sagði Blomst í samtali við Aftonbladet. Upphaflega var...

Lokahóf: Valgerður Elín og Ísak Óli best hjá Víkingi

Lokahóf meistaraflokka Víkings Reykjavíkur í handknattleik fór fram miðvikudagskvöldið 13. maí í veislusalnum í Virkinu í Safamýri þar sem leikmenn og þjálfarar komu saman og fögnuðu farsælu tímabili. Valgerður Elín Snorradóttir var valin besti leikmaður kvennaliðsins og Ísak Óli...
- Auglýsing -

Arnar landsliðsþjálfari: Ömurleg framkoma stuðningssveitar ÍBV

Arnar Pétursson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, er ekki á eitt sáttur við framkomu stuðningsmannasveitar ÍBV í úrslitakeppni Olísdeildar kvenna. Hafdís Renötudóttir, markvörður Vals, og Embla Steindórsdóttir, leikmaður Hauka, urðu fyrir fordómum er lið þeirra komu í heimsókn í íþróttamiðstöð Vestmannaeyja...

Ágúst til liðs við FH

Ágúst Guðmundsson er genginn til liðs við FH frá HK. Skrifar hann undir þriggja ára samning við FH, sem gildir til sumarsins 2029. Ágúst er tvítug hægri skytta sem hefur verið í stóru hlutverki hjá uppeldisfélagi sínu HK undanfarin tímabil...

Laufey Helga framlengir við meistarana

Laufey Helga Óskarsdóttir, bráðefnilegur leikmaður fjórfaldra meistara Vals, hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt. Hún er einungis 16 ára gömul en var í stóru hlutverki hjá Val á nýafstöðnu tímabili. Laufey Helga er leikstjórnandi og vinstri skytta sem...
- Auglýsing -

Dagur Sverrir til Stjörnunnar

Dagur Sverrir Kristjánsson hefur samið við Stjörnuna um að leika með liðinu næstu tvö tímabil. Kemur hann frá Vinslövs HK í Svíþjóð. Dagur Sverrir er 25 ára örvhent skytta sem hefur leikið í Svíþjóð undanfarin þrjú ár. Fyrstu tvö árin...

Hrafnhildur Anna bætist í hóp markvarða Hauka

Handknattleiksdeild Hauka hefur samið við Hrafnhildi Önnu Þorleifsdóttur markvörð um að leika með liðinu næstu árin. Hrafnhildur Anna kemur til liðs við Hauka frá Stjörnunni þar sem hún hefur leikið undanfarin tvö tímabil. Hrafnhildur Anna, sem er 26 ára, er...

Elín Klara valin með yfirburðum í úrvalsliðið í Svíþjóð

Landsliðskonan í handknattleik, Elín Klara Þorkelsdóttir, er í úrvalsliði sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Elín Klara fékk 84% atkvæða í valinu á besta leikstjórnanda deildarinnar í kjöri Handbollsligan Dam. Elín Klara gekk til liðs við IK Sävehof fyrir ári og hefur...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -