- Auglýsing -
- Auglýsing -

Okkar fólk úti

- Auglýsing -

Evrópumeistararnir mæta Þýskalandsmeisturunum í Meistaradeildinni

Íslendingalið SC Magdeburg dróst gegn löndum sínum í Füchse Berlín í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla. Aalborg Håndbold og FC Barcelona mætast í hinni viðureigninni. Dregið var í undanúrslitin í höfuðstöðvum Handknattleikssambands Evrópu, EHF, í Vín í Austurríki í...

Katrín Tinna til liðs við HH Elite í Horsens

Landsliðskonan Katrín Tinna Jensdóttir hefur samið við danska úrvalsdeildarliðið HH Elite í Horsens á Austur-Jótlandi frá og með næsta keppnistímabili. Katrín Tinna, sem er 23 ára gömul, hefur leikið með ÍR frá ársbyrjun 2024 auk þess að vera mikilvægur...

Birgir Már leikur í Sviss næstu tvö ár

Birgir Már Birgisson, hægri hornamaður FH, hefur skrifað undir tveggja ára samning við svissneska félagið GC Amicitia Zürich og gengur til liðs við það í sumar. Birgir Már hefur verið mikilvægur hlekkur í FH-liðinu allt frá því að hann...
- Auglýsing -

Fjórir þjálfarar koma helst til greina í þjálfarastólinn í Noregi

Fjórir þjálfarar þykja líklegastir í kapphlaupinu um starf landsliðsþjálfara Noregs í karlaflokki þegar Jonas Wille leggur niður vopnin í lok mánaðar. Stjórnendur norska handknattleikssambandsins sáu þann kost vænstan eftir Evrópumótið í upphafi árs að bjóða Wille ekki nýjan samning...

Myndskeið: Ísak á markvörslu ársins í Noregi

Ísak Steinsson markvörður Drammen og íslenska landsliðsins á bestu markvörslu ársins í norsku úrvalsdeildinni samkvæmt kosningu almennings á vefsíðunni Norsk Topphåndball. Tvöföld markvarsla Ísaks í leik gegn Fjellhammer hreif lesendur en tilþrifin má sjá í myndskeiði hér fyrir neðan. ...

Bjarki Már drjúgur sem fyrr – Janus Daði fjarverandi

Karlalið One Veszprém og Pick Szeged unnu auðvelda útisigra í efstu deild Ungverjalands í gær. Bjarki Már Elísson var samur við sig í markaskorun í sigri Veszprém en Janus Daði Smárason var fjarri góðu gamni í sigri Szeged. Bjarki Már...
- Auglýsing -

Ómar Ingi fór á kostum í 13 marka sigri

Ómar Ingi Magnússon var í aðalhlutverki hjá SC Magdeburg þegar liðið vann HSV Hamburg, 41:28, á heimavelli í 30. umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik. Ómar Ingi skoraði 11 mörk og geigaði ekki á skoti. Sjö markanna skoraði Selfyssingurinn...

Molakaffi: Arnar, Reynir, Monsi, Stiven, Þorsteinn, Orri, Viktor, Elmar, Tjörvi

Arnar Freyr Arnarsson skoraði tvö mörk og Reynir Þór Stefánsson eitt mark þegar Melsungen vann Eisenach, 37:34, á heimavelli í 31. umferð þýsku 1. deildarinnar í gær. Melsungen er í sjötta til sjöunda sæti deildarinnar ásamt Lemgo með 36...

Íslendingaliðið féll úr leik í 8-liða úrslitum eftir tvö töp á heimavelli

Íslendingaliðið Alpla Hard féll í kvöld úr leik í átta liða úrslitum úrslitakeppni austurrísku 1. deildarinnar í handknattleik er liðið tapaði á heimavelli fyrir Aon Fivers, 33: 31, í þriðju viðureign liðanna. Var þetta annað tap Alpla Hard. Fivers...
- Auglýsing -

Stórsigur og sæti í úrslitum er klárt

Blomberg-Lippe vann stórsigur á Thüringer HC, 35:24, í oddaleik í undanúrslitum þýsku 1. deildar kvenna í handknattleik í dag. Blomberg-Lippe, með landsliðskonurnar þrjár Andreu Jacobsen, Díönu Dögg Magnúsdóttur og Elínu Rósu Magnúsdóttur innanborðs, leikur þar með til úrslita um...

Kolstad mætir Drammen í úrslitum eftir sigur í oddaleik

Kolstad leikur til úrslita við Drammen HK í úrslitakeppni norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik karla. Kolstad vann öruggan sigur á Bergen Håndball, 38:32, í oddaleik í Kolstad Arena í Þrándheimi í dag. Fyrsti úrslitaleikur Kolstad og Drammen fer fram í...

Molakaffi: Blær, Heiðmar, Arnór, Sveinn

Blær Hinriksson skoraði tvö mörk í þriggja marka tapi Leipzig í heimsókn til Hannover-Burgdorf í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöld, 36:33. Leipzig rekur áfram lestina í deildinni þegar liðið á þrjá leiki eftir með 13 stig. GWD...
- Auglýsing -

Unnu þriðju viðureignina í röð og leika um meistaratitilinn

Einar Bragi Aðalsteinsson og samherjar hjá IFK Kristianstad leika til úrslita um sænska meistaratitilinn í handknattleik eftir þriðja sigurinn í röð á Alingsås í undanúrslitum í Kristianstad Arena í kvöld, 32:27. Magnaður viðsnúningur var í rimmu liðanna. Alingsås vann...

Haukur sló ekki slöku við í Porsche Arena

Haukur Þrastarson slær ekki sló ekki slöku við í leik með þýska liðinu Rhein-Neckar Löwen í kvöld fremur en síðustu vikur og mánuði. Hann skoraði 10 mörk og gaf fimm stoðsendingar í öruggum sigri Rhein-Neckar Löwen í heimsókn til...

Greið leið hjá Evrópumeisturunum

Evrópumeistarar Magdeburg komust örugglega áfram í undanúrslit Meistaradeildar eftir annan öruggan sigur á ungverska liðinu Pick Szeged, 45:37, í síðasta leik átta liða úrslita í keppnishöllinni í Magdeburg í kvöld. Magdeburg vann samanlagt með 15 marka mun, 80:65. Í gærkvöld...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -