Evrópumeistarar Vipers Kristiansand frá Noregi drógust í riðil með CSKA Moskvu og ungverska stórliðinu Györ í B-riðil Meistaradeildar Evrópu í handknattleik þegar dregið var í riðla í morgun.
Ljóst er að þrjú af þeim fjórum liðum sem þykja fyrirfram líklegust til að stefna rakleitt í undanúrslit keppninnar eru í B-riðli auk þess sem þar er einnig franska liðið Brest og danska meistaraliðið Odense Håndbold til viðbótar við Kastamonu Beledyesi GSK frá Tyrklandi og sænska liðið IK Sävehof sem voru ekki með í keppninni á síðasta keppnistímabili.
Fimm af átta liðum A-riðils eru frá austurhluta Evrópu.
Keppni í Meistaradeild Evrópu í kvennaflokki hefst 12. september.
A-riðill:
Brest Bretange Handball – Frakklandi.
FTC-Rail Cargo Hungaria (Ferencvaros) – Ungverjalandi.
Buducnost Bemax – Svartfjallalandi.
CSM Búkarest – Rúmeníu.
BV Borussia 09 Dortmund – Þýskalandi.
Rostov-Don, Rússlandi.
Team Esbjerg – Danmörku.
HC Podravka Vegeta – Króatíu.
B-riðill:
CSKA – Rússlandi.
Vipers Kristiansand – Noregi.
Krim Mercator Ljubljana – Slóveníu.
Odense Håndbold – Danmörku.
Györ Audi Eto KC – Ungverjalandi.
Metz Handball – Frakklandi.
Kastamonu Beledyesi GSK – Tyrklandi.
IK Sävehof – Svíþjóð.
- Var ekki heimilt að nota VAR
- Grill 66-deild kvenna: Afturelding, HK og Valur 2 fögnuðu að leikslokum
- Ekkert gaman að vera meiddur stúkunni leik eftir leik á stórmóti
- Danir komust inn á sigurbraut á nýja leik
- EM karla 2026 – milliriðlar – leikir, úrslit, staðan, leiktímar

