- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Óbreyttur hópur í síðari leiknum

Snorri Steinn Guðjónsson og Arnór Atlason þjálfarar landsliðsins. Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í handknattleik karla teflir fram sömu leikmönnum í síðari leiknum við Eistlendinga í umspili HM á morgun í Tallinn og tóku þátt í fyrri viðureigninni í Laugardalshöll á miðvikudagskvöld. Íslenska landsliðið vann fyrri viðureignina með 25 marka mun, 50:25, og hefur svo gott sem tryggt sér sæti á HM sem fram fer í Danmörku, Noregi og Króatíu frá 14. janúar til 2. febrúar á næsta ári.

Íslenska landsliðið fór til Eistlands í morgun. Flogið var til Helsinki og þaðan áfram til Tallinn. Frá Eistlandi fer hópurinn á sunnudaginn.

Leikurinn hefst klukkan 15 á morgun í Kalevi Spordihall í Tallinn. Ekki var leitað langt yfir skammt eftir dómurum og eftirlitsmanni vegna viðureignarinnar. Ivars Cernavskis og Edmunds Bogdanovs frá Lettlandi dæma og Litáinn Valdas Gercevicius verður eftirlitsmaður.

Íslenski landsliðshópurinn

Markverðir:
Ágúst Elí Björgvinsson, Ribe-Esbjerg (51/3).
Björgvin Páll Gústavsson, Val (270/24).
Aðrir leikmenn:
Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (97/100).
Bjarki Már Elísson, Telekom Veszprém (115/396).
Einar Bragi Aðalsteinsson, FH (1/0).
Einar Þorsteinn Ólafsson, Fredericia HK (11/4).
Elliði Snær Viðarsson, Vfl Gummersbach (49/108).
Elvar Ásgeirsson, Ribe-Esbjerg (20/21).
Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg (60/137).
Janus Daði Smárason, SC Magdeburg (83/135).
Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (13/23).
Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (39/116).
Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg (85/298).
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (75/213).
Viggó Kristjánsson, SC DHfK Leipzig (56/158).
Ýmir Örn Gíslason, Rhein-Neckar Löwen (89/36).

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -