ÍBV leikur til úrslita við Val um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna eftir að hafa unnið Hauka, 36:31, í tvíframlengdum oddaleik í Vestmannaeyjum í kvöld. Þetta var annar tvíframlengdri leikur liðanna í frábærri rimmu sem nú er lokið. Fyrsti úrslitaleikur Vals og ÍBV fer fram á Hlíðarenda á laugardaginn.
Viðureignin í kvöld var í járnum allt þangað til á síðustu fimm mínútum síðari framlengingarinnar þegar ÍBV-liðið virtist eiga aðeins meira eftir.
ÍBV var marki yfir, 15:14. Staðan var jöfn, 27:27, eftir 60 mínútna leik og 30:30 að loknum 70 mínútum. ÍBV var sterkara liðið í síðustu framlengingunni. Framliggjandi vörn ÍBV var sem fyrr Haukaliðinu erfið auk þess sem opin færi reyndust vannýtt.
Í hefðbundnum leiktíma var viðureignin í járnum. ÍBV var marki yfir í hálfleik, 15:14. Liðin skiptust á að vera marki yfir í síðari hálfleik. Ólöf Maren Bjarnadóttir kom í marki ÍBV undir lok venjulegs leiktíma og varði fimm skot úr opnum færum sem varð til þess að ÍBV náði frumkvæðinu undir lokin.
Haukar urðu fyrir áfalli þremur og hálfri mínútu fyrir leikslok þegar Inga Dís Jóhannsdóttir fékk rautt spjald.
Hálfri mínútu fyrir leikslok tók ÍBV leikhlé verandi marki yfir. Boltinn tapaðist 20 sekúndum fyrir leikslok. Sonja Lind Sigsteinsdóttir jafnaði metin eftir hraðaupphlaup, 27:27. ÍBV sneri fljótt vörn og Birna María Unnarsdóttir fékk opið færi á síðustu sekúndu en Sara Sif Helgadóttir varði og tryggði Haukum þar með framlengingu.
Haukar skoruðu tvö fyrstu mörk framlengingarinnar. ÍBV svaraði með þremur mörkum í röð eftir hver mistökin ráku önnu í sóknarleik Hauka. ÍBV var marki yfir, 30:29, þegar fyrstu fimm mínútur framlengingar voru liðnar. Aðeins eitt mark var skorað á síðari hluta fyrstu framlengingar. Staðan jöfn, 30:30.
Amalia Frøland markvörður ÍBV meiddist á þriðju mínútu síðari framlengingar eftir að hún varði vítakast. Óttast er hún kunni að vera alvarlega meidd.
Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 10/6, Agnes Lilja Styrmisdóttir 6, Birna Berg Haraldsdóttir 5, Amelía Dís Einarsdóttir 3, Ásdís Halla Hjarðar 3, Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir 3, Britney Emilie Florianne Cots 2, Lilja Kristín Svansdóttir 2, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 1, Birna María Unnarsdóttir 1.
Varin skot: Amalia Frøland 11/1, 31,4% – Ólöf Maren Bjarnadóttir 4, 41,7%.
Mörk Hauka: Embla Steindórsdóttir 8/1, Rakel Oddný Guðmundsdóttir 6, Sonja Lind Sigsteinsdóttir 5, Aníta Eik Jónsdóttir 3, Jóhanna Margrét Sigurðardóttir 3, Sara Marie Odden 2, Thelma Melsted Björgvinsdóttir 2, Alexandra Líf Arnarsdóttir 1, Inga Dís Jóhannsdóttir 1.
Varin skot: Sara Sif Helgadóttir 18, 34,6%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.



