Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir markvörður Stjörnunnar sá til þess að hið gamla vígi kvennahandknattleiksins, Stjarnan, héldi áfram þátttöku í efstu deild kvenna í handknattleik á næstu leiktíð. Hún fór hamförum í marki liðsins í kvöld og reið baggamuninn í tveggja...
Óðinn Þór Ríkharðsson og liðsfélagar í Kadetten Schaffhausen eru komnir í fína stöðu eftir annan sigur á BSV Bern, 29:28, í undanúrslitum úrslitakeppninnar í Sviss í kvöld. Leikmenn Kadetten stigu krappan dans í leiknum lengst af en tókst að...
Evrópumeistarar SC Magdeburg eru komnir að minnsta kosti með annan fótinn í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir öruggan sigur á ungverska liðinu Pick Szeged, 35: 28, í fyrri viðureign liðanna í átta liða úrslitum sem fram fór í Szeged í...
Handboltahjónin Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir og Leó Snær Pétursson hafa endurnýjað samninga sína við handknattleiksdeild HK og munu þau þar með áfram miðla af reynslu sinni til leikmanna kvenna- og karlaliða félagsins í keppni Olísdeilda á næstu leiktíð.
Valgerður Ýr tók...
„Breytingarnar eru fleiri en ég reiknaði með þegar ég fór að horfa fram til leikjanna við Egypta. Fyrst og fremst er það mín ákvörðun að gefa jafn mörgum leikmönnum frí frá leikjunum og raun ber vitni um,“ segir Snorri...
Magnús Stefánsson, þjálfari kvennaliðs ÍBV, var að vonum himinlifandi með 36:31 sigur liðsins á Haukum í tvíframlengdum oddaleik í undanúrslitum Olísdeildarinnar í gærkvöldi. ÍBV mætir Val í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn.
Magnús var sérstaklega ánægður með góða mætingu og stemninguna sem...
Landsliðskonan Dana Björg Guðmundsdóttir kvaddi norska félagið Volda formlega á samfélagsmiðlum í vikunni. Volda hefur lokið leik í B-deildinni á tímabilinu, hafnaði þar í fimmta sæti.
Dana Björg er á förum til stórliðsins Larvik, sem er á meðal sterkustu liða...
Þýska stórliðið THW Kiel tapaði ansi óvænt 33:30 fyrir RK Nexe Nasice í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Evrópudeildar karla í Króatíu í gærkvöldi. Fyrir fram höfðu þýskir miðlar búist við þægilegri viðureign.
„Það er einungis hálfleikur. Nú...
Ungverski landsliðsmaðurinn Richard Bodó yfirgefur Pick Szeged í sumar eftir 10 ára veru hjá félaginu. Ekki liggur fyrir hvert leið Bodó liggur að lokinni dvölinni í Szeged.
Þýski landsliðsmaðurinn Sebastian Heymann gengur til liðs við Hannover-Burgdorf í sumar. Heymann leikur...
Andri Sigfússon hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Gróttu til næstu tveggja ára. Hann tekur við af Davíð Erni Hlöðverssyni sem lét af störfum fyrir skemmstu eftir að Grótta féll úr leik í undanúrslitum umspils Olísdeildar karla með tapi fyrir...
Lokahóf meistaraflokka HK fór fram síðastliðinn föstudag í veislusal félagsins þar sem frábærum árangri á liðnu tímabili var fagnað. Meistaraflokkur karla náði frábærum árangri og komst í úrslitakeppni annað árið í röð. Meistaraflokkur kvenna náði einnig frábærum árangri með...
MT Melsungen stendur vel að vígi eftir fimm marka sigur á FC Porto í fyrri viðureign liðanna í átta liða úrslitum Evrópudeildar karla í handknattleik í kvöld, 28:23. Leikið var í Kassel í Þýskalandi. Síðari viðureign liðanna verður í...
Óttast er að Amalia Frøland markvörður ÍBV hafi meiðst alvarlega í oddaleik ÍBV og Hauka í íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum í kvöld. Verði það raunin að Frøland sé alvarlega meidd eru það vondar fréttir fyrir ÍBV-liðið sem mætir Val í...
ÍBV leikur til úrslita við Val um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna eftir að hafa unnið Hauka, 36:31, í tvíframlengdum oddaleik í Vestmannaeyjum í kvöld. Þetta var annar tvíframlengdri leikur liðanna í frábærri rimmu sem nú er lokið. Fyrsti úrslitaleikur...
Hér fyrir neðan er leikjadagskrá úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handknattleik 2026. Dagskráin verður uppfærð eftir því sem úrslitakeppninni vindur fram með úrslitum leikja, leikdögum og leiktímum.
Leikir úrslitakeppninnar verða sendir út á Handboltapassanum og valdar viðureignir í opinni dagskrá í...