- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Sjö víti fóru forgörðum – Víkingur áfram taplaus

Víkingur er einn áfram ósigraður í Grill 66-deild karla í handknattleik þegar liðið hefur leikið þrisvar sinnum. Fram2, mest ungmenni, hefur einnig sex stig en hefur lokið einni viðureign fleira. Bæði lið unnu viðureignir sínar í gær þegar þrjár...

Arnór áfram á toppnum þrátt fyrir tapað stig

Efsta lið 2. deildar karla í þýska handknattleiknum, Bergischer HC sem Arnór Þór Gunnarsson þjálfar, tapaði í fyrsta sinn stigi í leikjum deildarinnar á þessari leiktíð þegar liðið fór með skiptan hlut í viðureign við TV 05/07 Hüttenberg á...

Þorsteinn, Orri og Stiven létu til sína taka

Íslensku handknattleiksmennirnir þrír sem leika með félagsliðum í efstu deild portúgalska handknattleiksins létu heldur betur til sín taka í leikjum liðanna í gær. Skoruðu þeir Orri Freyr Þorkelsson, Stiven Tobar Valencia og Þorsteinn Leó Gunnarsson samtals 21 mark í...
- Auglýsing -

Dagskráin: Fjórða umferð Grill 66-deildar kvenna

Þrír leikir fara fram í 4. umferð Grill 66-deildar kvenna í handknattleik dag. Með þeim lýkur umferðinni en fyrsti leikur hennar var á föstudaginn þegar Afturelding mætti Berserkjum. Í gær áttust við tvö efstu lið deildarinnar, KA/Þór og HK...

Molakaffi: Harpa, Dana, Aldís, Tryggvi, Arnar, Tumi, Óðinn

Áfram heldur Harpa María Friðgeirsdóttir að gera það gott með TMS Ringsted í næst efstu deild danska handknattleiksins. Hún skoraði fimm mörk í gær þegar Ringsted vann Ejstrup-Hærvejen, 30:28, á útivelli í 4. umferð. Franska landsliðskonan fyrrverandi, Alexandra Lacrabere,...

Íslenskar handboltakonur fóru áfram í Evrópukeppni

Handknattleikskonurnar Andrea Jacobsen, Díana Dögg Magnúsdóttir, Berta Rut Harðardóttir og Jóhanna Margrét Sigurðardóttir komust áfram í aðra umferð í Evrópukeppni félagsliða í handknattleik í dag og í kvöld þegar síðari umferð 1. umferðar forkeppni Evrópudeildar og Evrópubikarkeppninnar voru leiknar. Tap...
- Auglýsing -

Áttum annað stigið sannarlega skilið

„Mér fannst við eiga stig skilið úr þessum leik þrátt fyrir erfiðan síðari hálfleik,“ sagði Sólveig Lára Kjænested þjálfari ÍR eftir jafntefli, 20:20, í við Fram í 5. umferð Olísdeildar kvenna í handknattleik í Skógarseli í dag. ÍR-ingar skoruðu...

Frammistaðan var ekki nógu góð hjá okkur

„Frammistaðan var ekki nógu góð hjá okkur að þessu sinni. Að sama skapi vil ég hrósa ÍR-liðinu. Mér fannst það spila frábærlega og loka vel á okkur varnarlega,“ sagði Rakel Dögg Bragadóttir þjálfari Fram eftir jafntefli, 20:20, við ÍR...

Íslandsmeistararnir unnu nýliðana í Kaplakrika

Íslandsmeistarar FH eru komnir í efsta sæti Olísdeildar karla í handknattleik eftir að þeir unnu Fjölni, 25:18, í síðasta leik sjöttu umferðar í Kaplakrika í kvöld. Aðeins var tveggja marka munur á liðunum eftir fyrri hálfleik, 13:11, FH í...
- Auglýsing -

Akureyrarliðið vann toppslaginn í KA-heimilinu

KA/Þór tyllti sér í efsta sæti Grill 66-deildar kvenna í handknattleik í dag með sigri á HK í uppgjöri tveggja efstu liðanna og þeirrar einu sem ekki höfðu tapað þegar gengið var til leiks í KA-heimilinu. Frábær fyrri hálfleikur...

Verðum að leika mikið betri vörn til að vinna Val

„Við mættum ekki almennilega í síðari hálfleikinn, því miður. Til þess að vinna Val verðum við að leika mikið betri vörn. Valur skoraði alltof auðveldlega á okkur,“ sagði Elín Klara Þorkelsdóttir leikmaður Hauka í samtali við handbolta.is eftir sex...

Var skíthræddur við leikinn

„Ég er mjög ánægður með sigurinn enda var ég skíthræddur við leikinn,“ sagði Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari Íslandsmeistara Vals eftir sigurinn á Haukum, 28:22, í Olísdeild kvenna í handknattleik í N1-höllinni í dag. „Haukaliðið er gríðarlega vel mannað og fékk...
- Auglýsing -

Afgerandi staða Vals – jafntefli í Skógarseli – úrslit dagsins

Valur hefur þriggja stiga forskot í efsta sæti Olísdeildar kvenna í handknattleik eftir að fimmtu umferð lauk í dag með fjórum viðureignum. Tveimur lyktaði með jafntefli. Valsliðið réði lögum og lofum í síðari hálfleik og vann með sex marka...

Dinart tekur við landsliði Svartfjallalands

Frakkinn Didier Dinart hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Svartfjallalands í handknattleik karla. Hann tekur við af Vlado Sola sem sagði af sér í vor eftir að Svartfellingar töpuðu fyrir Ítölum í undankeppni HM og misstu af þátttökurétti á HM sem...

Dagskráin: Haukar sækja Valsara heim – níu leikir í dag

Fjórir leikir fimmtu umferðar Olísdeildar kvenna í handknattleik fara fram í dag. Mikil eftirvænting ríkir fyrir viðureign Vals og Hauka sem hefst í N1-höll Vals á Hlíðarenda klukkan 14.15. Liðin léku til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í vor og hafði...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -