Haukur Þrastarson slær ekki sló ekki slöku við í leik með þýska liðinu Rhein-Neckar Löwen í kvöld fremur en síðustu vikur og mánuði. Hann skoraði 10 mörk og gaf fimm stoðsendingar í öruggum sigri Rhein-Neckar Löwen í heimsókn til...
Evrópumeistarar Magdeburg komust örugglega áfram í undanúrslit Meistaradeildar eftir annan öruggan sigur á ungverska liðinu Pick Szeged, 45:37, í síðasta leik átta liða úrslita í keppnishöllinni í Magdeburg í kvöld. Magdeburg vann samanlagt með 15 marka mun, 80:65.
Í gærkvöld...
Barcelona komst í kvöld í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í handknattleik. Þar með er ljóst að Viktor Gísli Hallgrímsson markvörður tekur í fyrsta sinn þátt í úrslitahelgi Meistaradeildar í Köln 13. og 14. júní. Barcelona vann stórsigur á Nantes, 31:21,...
Fjórða árið í röð féllu Bjarki Már Elísson og liðsfélagar í ungverska meistaraliðinu One Veszprém úr leik með minnsta mun í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla. Þeir töpuðu í kvöld í vítakeppni fyrir Füchse Berlin í...
Einar Bragi Aðalsteinsson og samherjar í IFK Kristianstad tókst eftir framlengda fjórðu viðureign í Alingsås að knýja fram sigur og krækja þar með í oddaleik í undanúrslitum á heimavelli á föstudaginn í úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar. Eftir mikinn barning vann...
Fram undan er Íslendingaslagur um sænska meistaratitilinn í handknattleik kvenna eftir að IK Sävehof, með Elínu Klöru Þorkelsdóttur innanborðs, og Skara HF, sem Lena Margrét Valdimarsson leikur með, unnu undanúrslitarimmur sína í kvöld. IK Sävehöf lagði Höörs HK H...
Hið unga lið Drammen með Ísak Steinsson markvörð innanborðs leikur til úrslita í úrslitakeppni norsku úrvalsdeildarinnar í fyrsta sinn í 15 ár. Drammen vann Elverum, 33: 32, í síðari undanúrslitaleik liðanna á heimavelli í kvöld. Niðurstaðan í tveggja leikja...
Ýmir Örn Gíslason, landsliðsmaður og leikmaður Frisch Auf! Göppingen, verður ekki með liðinu í leik gegn lærisveinum Rúnars Sigtryggssonar í HSG Wetzlar í þýsku 1. deildinni í Göppingen á morgun.
Benjamin Matschke, þjálfari Göppingen, sat fyrir svörum á fréttamannafund í...
Haukur Þrastarson, landsliðsmaður og leikmaður Rhein-Neckar Löwen í þýsku 1. deildinni, er á meðal sjö leikmanna deildarinnar sem eru tilnefndir sem besti leikmaður aprílmánaðar.
Haukur hefur leikið frábærlega fyrir Ljónin á sínu fyrsta tímabili í sterkustu deild heims og var...
Danska félagið Holstebro Håndbold, sem Katla María Magnúsdóttir leikur með, mun framvegis ekki heita því nafni. Félagið tilkynnti í vikunni að framvegis myndi félagið heita Nordvestjysk Elite.
Katla María og stöllur hennar unnu dönsku B-deildina á nýafstöðnu tímabili og spila...
Tumi Steinn Rúnarsson skoraði þrjú mörk og gaf eina stoðsendingu í eins marks sigri Alpla Hard á Aon Fivers, 32:31, í annarri viðureign liðanna í átta liða úrslitum úrslitakeppni austurrísku 1. deildarinnar í handknattleik í gær. Liðin hafa unnið...
Kolstad tókst að snúa við taflinu í dag og vinna Bergen Håndball, 33:30, í annarri viðureign liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik karla. Björgvinjarliðið vann fyrstu viðureignina í Þrándheimi í síðustu viku. Þess vegna voru leikmenn Kolstad...
Fabian Wiede, hægri skytta hjá Füchse Berlín, viðurkennir að hafa ekki verið nægilega hreinskiptinn í samskiptum við Alfreð Gíslason, þjálfara þýska landsliðsins, en að þeir hafi rætt málin og að hann gæti átt afturkvæmt í liðið.
Wiede, sem er 32...
Kristján Örn Kristjánsson, Donni, og liðsfélagar í Skanderborg AGF gulltryggðu sæti í undanúrslitum úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í kvöld með öruggum sigri á Bjerringbro/Silkeborg, 35:28, í næst síðustu umferð B-riðils átta liða úrslita. Leikið var á heimavelli Skanderborg-liðsins.
Donni...
Norðmaðurinn Jonas Wille, fráfarandi þjálfari norska karlalandsliðsins, hefur verið ráðinn nýr þjálfari karlaliðs Kadetten Schaffhausen í Sviss. Landsliðsmaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson leikur með Kadetten.
Wille var sterklega orðaður við starfið um helgina. Hann lætur af störfum sem landsliðsþjálfari Noregs að...