- Auglýsing -
- Auglýsing -

Olísdeildir

- Auglýsing -

Valur vann fyrstu orrustu eftir kaflaskipta viðureign

Valur vann fyrsta úrslitaleikinn um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna gegn ÍBV, 39:33, í kaflaskiptri viðureign í N1-höllinni á Hlíðarenda í dag. ÍBV var tveimur mörkum yfir, 20:18, að loknum fyrri hálfleik. Næsta viðureign liðanna fer fram í Vestmannaeyjum á...

Olís kvenna: Leikjadagskrá, úrslitakeppni 2026

Hér fyrir neðan er leikjadagskrá úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handknattleik 2026. Dagskráin verður uppfærð eftir því sem úrslitakeppninni vindur fram með úrslitum leikja, leikdögum og leiktímum. Leikir úrslitakeppninnar verða sendir út á Handboltapassanum og valdar viðureignir í opinni dagskrá í...

Fyrsti úrslitaleikur Vals og ÍBV stendur fyrir dyrum

Fyrsti úrslitaleikur Vals og ÍBV um Íslandsmeistaratitil kvenna í handknattleik fer fram í dag í N1-höllinni á Hlíðarenda. Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dómarar flauta til leiks klukkan 15. Næsta viðureign á eftir fer fram í Vestmannaeyjum á...
- Auglýsing -

Magnús Óli fékk heilahristing

Magnús Óli Magnússon leikmaður Vals fékk heilahristing í þriðja úrslitaleik Vals og FH um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik í gærkvöld. Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari Vals staðfestir tíðindin í viðtali við Vísi í dag. Magnús Óli varð fyrir þungu höfuðhöggi síðla...

Alvarleg meiðsli Frøland staðfest

Amalia Frøland markvörður ÍBV er með slitið fremra krossband í hné og leikur væntanlega ekki handknattleik næsta árið. Eyjafréttir staðfesta ótíðindin með alvarleg meiðsli markvarðarins sem leikur vitanlega ekki með ÍBV-liðinu í komandi úrslitaleikjum við Val um Íslandsmeistaratitilinn. Fyrsta...

Arnór Snær innsiglaði Valssigur í þriðja leiknum

Arnór Snær Óskarsson tryggði Val sigur í þriðja úrslitaleiknum við FH um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla í N1-höllinni á Hlíðarenda í kvöld, 32:30. Arnór Snær skoraði markið sem reið baggamuninn 25 sekúndum fyrir leikslok. Valur hefur þar með tvo...
- Auglýsing -

Olís karla: Leikjadagskrá, úrslitakeppni 2026

Hér fyrir neðan er leikjadagskrá úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik 2026. Dagskráin verður uppfærð eftir því sem úrslitakeppninni vindur fram með úrslitum leikja, leikdögum og leiktímum. Leikir úrslitakeppninnar eru sendir út á Handboltapassanum og valdar viðureignir í opinni dagskrá í...

Magnús Óli borinn af leikvelli

Valsmaðurinn Magnús Óli Magnússon var borinn af leikvelli seint í fyrri hálfleik þriðja úrslitaleik Vals og FH um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik í N1-höllinni. Magnús Óli fékk þungt högg þegar höfuð hans small í öxlinni á Ingvari Degi Gunnarssyni varnarmanni...

Adam Haukur hættur – lék með Haukum alla tíð

Adam Haukur Baumruk, leikmaður Hauka, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna 32 ára að aldri. Hann lék allan sinn meistaraflokksferil með Haukum og lék sömuleiðis með Hafnarfjarðarliðinu í yngri flokkum. Adam Haukur greindi frá því að hann væri hættur...
- Auglýsing -

Hinn mikilvægi þriðji úrslitaleikur stendur fyrir dyrum

Valur og FH mætast í þriðja sinn í úrslitum Olísdeildar karla í N1 höllinni á Hlíðarenda í kvöld. Staðan í einvíginu er 1:1 eftir að liðin hafa unnið sinn hvorn heimaleikinn til þessa. Þriðji leikur úrslitaeinvígisins er oft talinn mikilvægastur...

Skórnir endanlega komnir á hilluna hjá Sunnu

Sunna Jónsdóttir, þrautreyndur leikmaður Fram og fyrirliði íslenska landsliðsins um skeið, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Staðfesti hún ákvörðun sína í samtali við Handkastið. „Skórnir komnir lengst upp og innst inn í hillu upp á háalofti,“ sagði Sunna...

Handboltahjónin leika áfram með HK

Handboltahjónin Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir og Leó Snær Pétursson hafa endurnýjað samninga sína við handknattleiksdeild HK og munu þau þar með áfram miðla af reynslu sinni til leikmanna kvenna- og karlaliða félagsins í keppni Olísdeilda á næstu leiktíð. Valgerður Ýr tók...
- Auglýsing -

Man ekki eftir að hafa séð þetta áður á kvennaleik

Magnús Stefánsson, þjálfari kvennaliðs ÍBV, var að vonum himinlifandi með 36:31 sigur liðsins á Haukum í tvíframlengdum oddaleik í undanúrslitum Olísdeildarinnar í gærkvöldi. ÍBV mætir Val í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Magnús var sérstaklega ánægður með góða mætingu og stemninguna sem...

Lokahóf: Tinna Ósk og Sigurður best hjá HK

Lokahóf meistaraflokka HK fór fram síðastliðinn föstudag í veislusal félagsins þar sem frábærum árangri á liðnu tímabili var fagnað. Meistaraflokkur karla náði frábærum árangri og komst í úrslitakeppni annað árið í röð. Meistaraflokkur kvenna náði einnig frábærum árangri með...

Óttast er að Frøland hafi meiðst alvarlega

Óttast er að Amalia Frøland markvörður ÍBV hafi meiðst alvarlega í oddaleik ÍBV og Hauka í íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum í kvöld. Verði það raunin að Frøland sé alvarlega meidd eru það vondar fréttir fyrir ÍBV-liðið sem mætir Val í...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -