- Auglýsing -
- Dagur Arnarsson lék sinn 250. leik fyrir meistaraflokk ÍBV í sigurleiknum á FH í Olísdeild karla í handknattleik á miðvikudagskvöld í Kaplakrika. Dagur er aðeins 24 ára gamall en hefur verið fastamaður í meistaraflokksliði ÍBV um árabil, var m.a. í Íslandsmeistaraliði félagsins fyrir sjö árum.
- Þórir Haraldsson var í fyrrakvöld endurkjörinn formaður handknattleiksdeildar Selfoss á aðalfundi deildarinnar. Aðrir sem sátu í stjórn með Þóri gáfu kost á sér í til endurkjörs og fengu stuðning til áframhaldandi setu ásamt formanni. Sömu sögu er að segja um þá sem setið hafa í varastjórn og í unglingaráði.
- Bjarni Kristinn Eysteinsson var endurkjörinn formaður handknattleiksdeildar Fram á aðalfundi deildarinnar á þriðjudaginn. Halldóra F. Sigurgeirsdóttir, formaður barna- og unglingráðs hlaut einnig brautargengi til áframhaldandi starfa. „Flestir meðstjórnendur halda áfram sem er gleðiefni,“ segir í tilkynningu handknattleiksdeildar Fram í gær.
- Markvörðurinn Nicholas Satchwell hjá KA var valinn í 16-manna landsliðshóp Færeyinga sem leikur við þýska landsliðið í undankeppni HM 13. og 16. apríl. Framarinn Vilhelm Poulsen var einnig valinn í liðið en óvíst er um þátttöku hans vegna meiðsla eins og kom fram á handbolta.is í gær. Aðrir færeyskir handknattleikskarlar sem leika hér á landi voru ekki valdir að þessu sinni.
- Ólafur Andrés Guðmundsson var ekki í leikmannahópi Montpellier í gær þegar liðið gerði jafntefli við Porto, 29:29, í fyrri viðureign liðanna í 1. umferð útsláttarkeppni Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla. Leikið var í Porto. Síðari leikurinn fer fram í Frakklandi eftir viku.
- Í hinni viðureign gærkvöldsins í Meistaradeildinni vann ungverska liðið Veszprém öruggan sigur á Vardar, 30:22. Leikurinn fór fram í Skopje í Norður Makedóníu.
- Aðalsteinn Eyjólfsson og lærisveinar hans í Kadetten töpuðu fyrir Suhr Aaruau, 34:28, í svissnesku A-deildinni í handknattleik á útivelli í gærkvöld. Engu að síður hefur Kadetten yfirburðastöðu í deildinni.
- Auglýsing -