Birgir Steinn Jónsson og liðsfélagar í IK Sävehof tryggðu sér sæti í undanúrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í kvöld er þeir lögðu Hammarby, 38:33, í oddaleik á heimavelli Hammarby í Stokkhólmi. Eftir tvo tapleiki í röð mættu leikmenn IK...
Aron Rafn Eðvarðsson markvörður Hauka var úrskurðaður í eins leiks bann á fundi aganefndar HSÍ í dag. Aron virðist hafa hlaupið á sig eftir að viðureign Hauka og FH í undanúrslitum Olísdeildar karla lauk síðasta föstudag.
„Aganefnd barst skrifleg skýrsla...
Handknattleiksdeild Víkings úr Reykjavík hefur samið við Gunnar Hrafn Pálsson um að leika með liðinu á næsta tímabili. Hann kemur til liðsins frá Gróttu. Víkingur vann Grill 66 deildina á nýafstöðnu tímabili og leikur því í Olísdeildinni á því...
Færeyingurinn Sveinur Olafsson leikur ekki áfram með Aftureldingu á næsta tímabili. Samningur hans er á enda runninn og hyggst Sveinur flytja til Danmerkur og sameina þar handboltaiðkun og nám.
Staðfesti hann tíðindin í samtali við Handkastið. Sveinur er 23 ára...
Alfreð Gíslason, þjálfari þýska karlalandsliðsins, var viðstaddur úrslitahelgi þýsku bikarkeppninnar þar sem Füchse Berlín fór með sigur af hólmi gegn lærisveinum Arnórs Þórs Gunnarrsonar í Bergischer HC í úrslitaleiknum í Lanxess Arena í Köln í gær.
Alfreð fylgdist eins og...
Emil Nielsen, einn besti ef ekki besti markvörður heims, segir nokkuð skondna ástæðu liggja að baki því að hann hafi ákveðið að velja handbolta fram yfir fótbolta á sínum yngri árum.
Nielsen er 29 ára gamall aðalmarkvörður danska landsliðsins og...
Íslendingalið SC Magdeburg átti ekki góða helgi þar sem það tapaði báðum leikjum sínum um úrslitahelgi þýsku bikarkeppninnar. Í þokkabót voru Felix Claar og Albin Lagergren, sænskir leikmenn liðsins, rændir eigum sínum.
Magdeburg hafnaði í fjórða sæti bikarkeppninnar eftir að...
Sóldís Rós Ragnarsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt Fram. Gildir nýi samningurinn til næstu þriggja ára, til sumarsins 2029.
Sóldís Rós er tvítug skytta sem spilar þó mestmegnis í vörninni, þar sem hún er í lykilhlutverki hjá...
Elvar Ásgeirsson skoraði fimm mörk, gaf tvær stoðsendingar og var einu sinni vikið af leikvelli er Ribe-Esbjerg tapaði stórt fyrir HØJ, 39:25, í umspili dönsku úrvalsdeildarinnar í gær. Ribe-Esbjerg var á grænni grein fyrir leikinn og heldur sæti sínu...
Skanderborg AGF, lið Kristjáns Arnar Kristjánssonar Donna, vann TTH Holstebro, 37: 30, í Holstebro í kvöld í 3. umferð annars af tveimur riðlum úrslitakeppninnar um danska meistaratitilinn í handknattleik. Stendur Skanderborg þar með afar vel að vígi að hálfnaðri...
Stjarnan jafnaði metin í einvíginu við Gróttu í umspili Olísdeildar kvenna í handknattleik í dag, 26:22. Staðan var 13:10 Stjörnunni í hag að loknum fyrri hálfleik. Leikið var í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi.
Hvort lið hefur þar með unnið einn leik...
Hér fyrir neðan er leikjadagskrá umspils Olísdeildar kvenna í handknattleik sem hófst sunnudaginn 29. mars. Dagskráin verður uppfærð eftir því sem keppninni vindur fram með úrslitum, leikdögum og leiktímum.
Leikir umspilsins verða sendir út á Handboltapassanum.
Úrslit
16. apríl: Stjarnan - Grótta...
Bjarki Már Elísson var markahæstur leikmanna One Veszprém í dag þegar liðið varð ungverskur bikarmeistari í handknattleik með öruggum sigri á Tatabánya, 34:22, í úrslitaleik í keppnishöllinni í Györ. Bjarki Már lék allan leikinn, jafnt í vörn sem sókn....
Bergischer HC, sem Arnór Þór Gunnarsson fyrrverandi landsliðsmaður þjálfar við annan mann, fékk silfurverðlaun í þýsku bikarkeppninni í handknattleik í dag. Eftir sigur á toppliði þýsku 1. deildarinnar, SC Magdeburg, reyndist Füchse Berlin ofjarl Bergischer HC í úrslitaleiknum í...
Handknattleiksdeild HK og Katrín Hekla Magnúsdóttir hafa skrifað undir nýjan tveggja ára samning. Katrín Hekla er vinstri hornamaður, fædd árið 2005 og spilaði í yngri flokkum hjá HK.
„Katrín Hekla hefur leikið með meistaraflokki félagsins síðastliðin 5 ár. Síðastliðin þrjú...