Efst á baugi

- Auglýsing -
- Auglýsing -

HK fór með bæði stigin úr Framhúsinu

Ungmennalið HK er komið með 19 stig þegar liðið á tvo leiki eftir í Grill66-deild kvenna í handknattleik. Í dag vann HK ungmennalið Fram, 28:26, í Framhúsinu eftir að hafa verið þremur mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik. HK er...

Volda heldur sínu striki í átt að úrvalsdeildinni

Volda heldur efsta sæti norsku 1. deildar kvenna eftir leiki 17. umferðar sem fram fóru í dag. Volda er með 31 stig þegar liðið á þrjá leiki eftir. Í dag vann Voldaliðið, sem Halldór Stefán Haraldsson þjálfar, liðsmenn Grane...

Upp í annað sæti á nýjan leik

ÍR komst á ný upp í annað sæti Grill66-deildar í dag þegar liðið vann Kórdrengi með 10 marka mun í Digranesi, 35:25, eftir að hafa verið fjórum mörkum yfir í hálfleik, 16:12. ÍR-ingar eru með 29 stig eftir 18 leiki,...
- Auglýsing -

Aron og Arnór bikarmeistarar

Aron Pálmarsson og Arnór Atlason urðu í dag danskir bikarmeistarar í handknattleik með Aalborg Håndbold. Álaborgarliðið lagði GOG, 30:27, í úrslitaleik eftir að hafa verið marki yfir að loknum fyrri hálfleik, 17:16. Aron skoraði sjö mörk í 11 skotum fyrir...

Leikjavakt: Hver er staðan?

Fimm leikir fara fram í 19. umferð Olísdeildar karla í dag og í kvöld. 16.00 KA - Afturelding.16.00 HK - Grótta.17.00 ÍBV - Haukar.18.00 Víkingur - Selfoss.19.30 FH - Stjarnan. Staðan í Olísdeild karla. Handbolti.is ætlar að freista þess að fylgjast með...

Teitur Örn með fimm – Elvar Örn er meiddur

Teitur Örn Einarsson átti prýðilegan leik þegar lið hans Flensburg vann öruggan sigur á Melsungen, 32:26, í Melsungen í dag í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Teitur Örn skorað fimm mörk og átti tvær stoðsendingar. Frændi hans, Elvar Örn...
- Auglýsing -

Bjartur Már og félagar unnu neðri hluta keppninnar

Bjartur Már Guðmundsson fyrrverandi leikmaður Víkings hefur í vetur leikið með færeyska úrvalsdeildarliðinu StÍF í Skálum í Færeyjum. Hann hefur gert það gott þótt ekki hafi piltur verið í hópi markahæstu leikmanna. „Stoðsendingar og góð stýring telur oft meira...

Dagskráin: Haukar leika í Eyjum og hugsanlega sætaskipti

Fimm leikir fara fram í Olísdeild karla í handknattleik í dag í 19. umferð. Fyrsti leikur umferðarinnar var í gærkvöld. Valur vann Fram með fjögurra marka mun, 30:26. Efsta lið Olísdeildar, Haukar, sækir ÍBV heim í stórleik umferðarinnar. Flautað verður...

Þóra Björg fór á kostum í átta marka sigri

Ungmennalið ÍBV beit hressilega frá sér þegar það mætti ungmennaliði Vals í Grill66-deild kvenna í handknattleik í Origohöllinni í gærkvöld. Unglingalandsliðskonan Þóra Björg Stefánsdóttir fór á kostum í liði ÍBV. Hún skoraði 12 mörk í átta marka sigri, 34:26. ÍBV-liðið...
- Auglýsing -

Molakaffi: Viktor, Aron, Sandra, Elliði, Örn, Anton, Arnar, Sveinbjörn, Orri, Aron, Axel, Hannes, Haukur

Íslendingaliðin Aalborg Håndbold og GOG mætast í úrslitum dönsku bikarkeppninnar í handknattleik karla í dag. Aalborg vann ríkjandi bikarmeistara Mors Thy, 34:25, í undanúrslitum i gær og GOG lagði Bjerringbro/Silkeborg, 35:26.  Aron Pálmarsson skoraði þrjú mörk og átti eina stoðsendingu...

Valur læddist upp í annað sæti

Valur læddi sér upp í annað sæti Olísdeildar karla í kvöld með því að leggja Fram, 30:26, í upphafsleik 19. umferðar. Valur er stigi á eftir Haukum sem tróna á toppnum en Haukar eins og önnur lið deildarinnar að...

Þórsarar halda áfram að nálgast

Þórsarar halda áfram að sækja að efstu þremur liðum Grill66-deildar karla í handknattleik. Þeir lögðu ungmennalið Selfoss á sannfærandi hátt í Höllinni á Akureyri í dag, 33:29, eftir að hafa verið fjórum mörkum yfir þegar viðureignin var hálfnuð, 17:13. Þór...
- Auglýsing -

Valur er aðeins stigi á eftir Fram

Valur er aðeins einu stigi á eftir Fram sem er efst í Olísdeild kvenna eftir 19. umferð deildarinnar í dag. Valur vann Stjörnuna, 28:22, í TM-höllinni í Garðabæ og er með 26 stig. Eins og kom fram fyrr í...

Meistararnir sóttu stigin í Safamýri – ÍBV hefndi fyrir tapið

Íslandsmeistarar KA/Þórs fögnuðu sigri í Safamýri í dag þegar liðið lagði þar Fram með þriggja marka mun í 18. umferð Olísdeildar kvenna, 30:27, eftir að hafa verið tveimur mörkum undir í hálfleik, 13:11. KA/Þór situr áfram í þriðja sæti deildarinnar...

Leikjavakt: Stjarnan – Valur / Haukar – Afturelding

Klukkan 16 hefjast tveir leikir í 18. umferð Olísdeildar kvenna í handknattleik. Stjarnan tekur á móti bikarmeisturum Vals í TM-höllinni og á Ásvöllum eigast við Haukar og Afturelding. Handbolti.is fylgist með báðum leikjum og greinir frá stöðunni í þeim...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -