Ungverska meistaraliðið One Veszprém og Spánarmeistarar Barcelona unnu andstæðinga sína í fyrri viðureignum átta liða úrslita Meistaradeildar karla í handknattleik í kvöld. One Veszprém lagði þýsku meistarana Füchse Berlin, 35:34, á heimavelli og Barcelona lagði Nantes í Frakklandi, 32:30,...
Elín Klara Þorkelsdóttir lék við hvern sinn fingur í kvöld í öðrum sigri IK Sävehof á Höörs HK H 65 í undanúrslitum úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik, 31:28. Leikið var í Höör. Elín Klara skoraði átta mörk í níu...
Blær Hinriksson og félagar í SC DHfK Leipzig unnu afar mikilvægan sigur í botnbaráttu þýsku 1. deildarinnar í kvöld er þeir lögðu lán- og Íslendingalaust lið Erlangen, 30:29, á heimavelli í 30. umferð deildarinnar. Með sigrinum færðist SC DHfK...
Landsliðsmaðurinn í handknattleik, Teitur Örn Einarsson, hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við þýska handknattleiksliðið VfL Gummersbach. Tekur samningurinn við af tveggja ára samningi á milli félagsins og Teits Arnar sem rennur út um mitt árið. Hann verður...
Daniel Duhr, dálkahöfundur hjá þýska miðlinum Handball World, tileinkar dálk sinn á vefnum í dag Guðjóni Val Sigurðssyni, þjálfara VfL Gummersbach. Þar sparar Duhr ekki stóru orðin og hvetur félagið til þess að framlengja samning Guðjóns Vals tafarlaust.
Ellegar megi...
Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði ekki mark fyrir Skara HF þegar liðið tapaði með eins marks mun á heimavelli, 26:25, í annarri umferð undanúrslita úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í gær. Lena Margrét gaf tvær stoðsendingar. Staðan er nú jöfn, hvort lið...
Það er svo sannarlega á brattann að sækja hjá Íslendingunum og liðum þeirra í úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik karla. Bæði IFK Kristianstad og IF Sävehof hafa tapað tveimur fyrstu leikjum sínum í undanúrslitum. IFK tapaði fyrir Alingsås á...
Óðinn Þór Ríkharðsson og liðsfélagar í Kadetten Schaffhausen eru komnir í fína stöðu eftir annan sigur á BSV Bern, 29:28, í undanúrslitum úrslitakeppninnar í Sviss í kvöld. Leikmenn Kadetten stigu krappan dans í leiknum lengst af en tókst að...
Evrópumeistarar SC Magdeburg eru komnir að minnsta kosti með annan fótinn í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir öruggan sigur á ungverska liðinu Pick Szeged, 35: 28, í fyrri viðureign liðanna í átta liða úrslitum sem fram fór í Szeged í...
Andri Már Rúnarsson, Viggó Kristjánsson og liðsfélagar þeirra í HC Erlangen heimsækja Blæ Hinriksson og félaga í DHfK Leipzig í þýsku 1. deildinni annað kvöld. Leikurinn gæti haft tilfinningalegt gildi fyrir Andra Má af ýmsum ástæðum.
Andri Már lék nefnilega...
Landsliðskonan Dana Björg Guðmundsdóttir kvaddi norska félagið Volda formlega á samfélagsmiðlum í vikunni. Volda hefur lokið leik í B-deildinni á tímabilinu, hafnaði þar í fimmta sæti.
Dana Björg er á förum til stórliðsins Larvik, sem er á meðal sterkustu liða...
Þýska félagið VfL Gummersbach hefur ráðið Portúgalann André Teixeira í starf markmannsþjálfara. Teixeira tekur við starfinu í sumar og skrifaði undir tveggja ára samning. Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari liðsins.
Hann starfar sem stendur sem markmannsþjálfari HC Erlangen, sem Viggó...
Alfreð Gíslason, þjálfari þýska karlalandsliðsins, hefur tilkynnt hvaða 17 leikmenn munu taka þátt í tveimur vináttulandsleikjum gegn Danmörku um miðjan næsta mánuð. Tveir nýliðar eru í hópnum.
Nýliðarnir tveir eru Moritz Sauter, liðsfélagi Einars Þorsteins Ólafssonar hjá HSV Hamburg, og...
Dagur Sigurðsson, þjálfari króatíska karlalandsliðsins, er einn þeirra sem koma til greina sem arftaki Spánverjans Talant Dujshebaev við þjálfun pólska stórliðsins Industria Kielce. Dujshebaev lét óvænt af störfum í síðustu viku.
Samningur hans við Kielce átti að renna út næsta...
Rhein-Neckar Löwen hefur mikinn áhuga á því að semja við landsliðsmanninn Elvar Örn Jónsson, sem er leikmaður stórliðs SC Magdeburg. Selfyssingurinn yrði hugsaður sem arftaki Sebastian Heymann, sem gengur til liðs við TSV Hannover-Burgdorf í sumar.
Áætlað var að Heymann...