Elmar Erlingsson og liðsfélagar í Nordhorn-Lingen lyftu sér upp í fimmta sæti 2. deildar þýska handknattleiksins í kvöld eftir tveggja marka sigur á TV 05/07 Hüttenberg á heimavelli, 35:33. Hüttenberg var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 20:18.
Elmar skoraði...
SC Magdeburg varð í kvöld þýskur meistari í handknattleik í fjórða sinn. Liðið tryggði sér meistaratitilinn með eins marks sigri á Flensburg, 31:30, í GETEC Arena í Magdeburg í kvöld. Þrír íslenskir landsliðsmenn leika með liðinu; Elvar Örn Jónsson,...
Sænski meistaratitillinn blasir við Elínu Klöru Þorkelsdóttur og liðsfélögum í IK Sävehof eftir annan sigur á Skara HF, 30: 27, í úrslitum um meistaratitilinn. Leikið var í Skara. IK Sävehof getur tryggt sér meistaratitilinn á heimavelli í þriðju viðureigninni...
Karlalið Kolstad mun hefja keppni í norsku úrvalsdeildinni á næsta tímabili með tvö mínus stig. Norska handknattleikssambandið tilkynnti um ákvörðun sína í dag.
Ástæðan fyrir refsingunni er sú að Kolstad hefur brotið gegn skilmálum keppnisleyfis síns í norsku úrvalsdeildinni. Skyldi...
Íslendingalið SC Magdeburg getur í kvöld tryggt sér þýska meistaratitilinn þegar það fær SG Flensburg-Handewitt í heimsókn í toppslag 1. deildarinnar. Sigur eða jafntefli nægir Magdeburg til þess að tryggja titilinn.
Fyrir leikinn í kvöld, sem er frestaður leikur úr 30....
Einar Bragi Aðalsteinsson var í ham þegar IFK Kristinstad vann Malmö, 39:34, í fyrsta úrslitaleik liðanna um sænska meistaratitilinn í handknattleik karla í Kristinstad Arena. Einar Bragi skoraði 11 mörk í 14 skotum og var langmarkahæsti leikmaður IFK Kristinastad....
Kristján Örn Kristjánsson, Donni, og liðsfélagar í Skanderborg AGF unnu fyrsta undanúrslitaleikinn við GOG í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í kvöld, 38:35, eftir framlengingu. Staðan var jöfn, 32:32, eftir hefðbundinn leiktíma.
Leikurinn var kaflaskiptur því GOG hafði fjögurra marka forskot...
Karlalið þýska félagsins HSG Wetzlar, sem Rúnar Sigtryggsson þjálfar, heldur áfram að styrkja sig fyrir næsta tímabil. Norski línumaðurinn Petter Øverby kemur frá THW Kiel í sumar og skrifar undir þriggja ára samning eftir fjögurra ára dvöl hjá Kiel.
Øverby...
Guðjón Valur Sigurðsson, þjálfari VfL Gummersbach, er samningsbundinn félaginu til sumarsins 2027. Christoph Schindler, framkvæmdastjóri Gummersbach, vill gjarna halda honum lengur.
Guðjón Valur ræddi framtíð sína í hlaðvarpinu First 7 og kvaðst þar rólegur yfir stöðunni.
„Síðast þegar ég framlengdi var...
Claus Møller Jakobsen, fyrrverandi landsliðsmaður Danmerkur og núverandi sérfræðingur hjá TV2 Sport í heimalandinu, vandar Alfreð Gíslasyni þjálfara þýska karlalandsliðsins ekki kveðjurnar eftir að Þýskaland tapaði tvisvar fyrir Danmörku í nýafstöðnu landsleikjahléi.
Þýskaland tapaði 28:36 fyrir Danmörku í Kaupmannahöfn á...
Jón Brynjar Björnsson, fyrrverandi þjálfari kvennaliða Víkings og Aftureldingar, hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari sænska kvennaliðsins Lugi í Lundi. Jón Brynjar lét af störfum hjá Aftureldingu síðasta sumar og flutti til Svíþjóðar vegna framhaldsnáms eiginkonunnar. Jón Brynjar þjálfaði yngri flokka...
IK Sävehof vann fyrsta úrslitaleikinn um sænska meistaratitilinn í handknattleik kvenna á heimavelli í kvöld. IK Sävehof lagði Skara HF, 25:22, eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir í hálfleik, 12:10. Elín Klara Þorkelsdóttir skoraði fimm af mörkum IK...
Bennet Wiegert, þjálfari karlaliðs SC Magdeburg, er á meðal þeirra sem koma til greina sem arftaki Alfreðs Gíslasonar, þjálfara þýska karlalandsliðsins.
Samningur Alfreðs rennur út að HM 2027 í Þýskalandi loknu. Mótið fer fram í janúar og liggur ekki fyrir...
Íslendingaliðið Blomberg-Lippe tapaði naumlega, 28:27, fyrir Borussia Dortmund í fyrsta úrslitaleik liðanna um þýska meistaratitilinn í handknattleik kvenna í dag. Leikið var í Dortmund. Blomberg-Lippe hafði þriggja marka forskot í hálfleik, 17:14. Næsti leikur liðanna verður í Ulmenallee Blomberg...
Bandaríkin unnu forkeppni Norður-Ameríku og Karíbahafs fyrir heimsmeistaramót karla í handknattleik sem lauk seint í gærkvöld í Bettendorf í Iowa. Bandaríska landsliðið vann grænlenska landsliðið í úrslitaleik, 32:18, eftir að hafa verið þremur mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik,...