Okkar fólk úti

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Bjarki Már og félagar eru lausir úr sóttkví

Bjarki Már Elísson og samherjar hans í þýska liðinu Lemgo komu saman til æfinga á nýjan leik í dag. Hálf þriðja vika er liðin síðan þeir máttu síðast mæta á æfingu. Kórónuveiran stakk sér niður í herbúðir liðsins og...

PAUC saknar enn Donna

Lið Kristjáns Arnar Kristjánssonar, Donna, PAUC-Aix, saknaði íslensku stórskyttunnar í kvöld þegar það fékk grannliðið Montpellier í heimsókn í frönsku 1. deildinni í handknattleik. Montpellier vann með fimm marka mun, 32:27, og situr eftir sem áður í öðru sæti...

PCR-prófið týndist – Grétar Ari mátti ekki vera með

Nice tapaði í kvöld mikilvægu stigi í kapphlaupi um sæti í úrslitakeppni frönsku B-deildarinnar í handknattleik þegar liðið gerði jafntefli við botnlið deildarinnar Sarrebourg, 27:27, á útivelli. Grétar Ari Guðjónsson, markvörður, sem hefur verið frábær á leiktíðinni, mátti ekki...
- Auglýsing -

Róbert flytur heim í sumar

Róbert Gunnarsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handknattleik, hefur ákveðið að flytja til Íslands í sumar með fjölskyldu sinni eftir um tveggja áratuga búsetu í Danmörku, Þýskalandi og í Frakklandi. Síðustu fimm ár hefur Róbert búið í Árósum þar sem...

Íslendingaslagur um bronsverðlaun í Færeyjum

Neistin, sem Arnar Gunnarsson þjálfari, tapaði öðru sinni í kvöld fyrir VÍF frá Vestmanna í undanúrslitum færeysku úrvalsdeildarinnar í handknattleik, lokatölur 28:23, fyrir VÍF. Þar með liggur fyrir að VÍF mætir ríkjandi meisturum H71 í úrslitaleik um færeyska meistaratitilinn á...

Sigurgangan heldur áfram

Barcelona með Aron Pálmarsson í áhöfn varð fyrst liða til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handknattleik í dag. Barcelona lagði þá Noregsmeistara Elverum öðru sinni í 16-liða úrslitum í Barcelona á þremur dögum,...
- Auglýsing -

„Enginn bikar og allir frekar slakir

„Það er ekki mikið gert úr þessum deildarmeistaratitli hér í Danmörku. Engin bikar og allir voru frekar slakir. Það kom mér á óvart,“ sagði Viktor Gísli Hallgrímsson, landsliðsmarkvörður og markvörður GOG, sem varð danskur deildarmeistari í handknattleik í gær...

Komast þrjú Íslendingalið í undanúrslit?

Það verður sannkallaður Íslendingaslagur þegar leikið verður í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar í handknattleik karla 13. og 20. apríl. Sænska liðið IFK Kristianstad, sem Ólafur Andrés Guðmundsson og Teitur Örn Einarsson leika með mæta Ómari Inga Magnússyni og samherjum...

Aron Rafn gerði löndum sínum gramt í geði

Aron Rafn Eðvarðsson, markvörður Bietigheim, reyndist löndum sínum í EHV Aue óþægur ljár í þúfu í dag þegar lið þeirra mættust í þýsku 2. deildinni. Aron Rafn varði 13 skot og var með ríflega 39% hlutfallsmarkvörslu í 11 marka...
- Auglýsing -

Gunnar Steinn og samherjar sækja að Löwen

Gunnar Steinn Jónsson og samherjar í Göppingen styrktu stöðu sína í fimmta sæti þýsku 1. deildarinnar í dag með eins marks sigur á Füchse Berlin á heimavelli, 25:24. Á sama tíma tapaði Rhein-Neckar Löwen fyrir Wetzlar, 34:32, á útivelli....

Viktor Gísli deildarmeistari í Danmörku

Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar í GOG urðu í dag danskir deildarmeistarar í handknattleik með sigri á Fredericia, 30:26, í lokaumferð deildarinnar. Bætist þar með önnur rós í hnappagat landsliðsmarkvarðarins á leiktíðinni því í haust varð hann danskur...

Sigurgangan heldur áfram – Alexander og félagar efstir

Magdeburg tapaði sínum fyrsta leik í þýsku 1. deildinni í handknattleik síðan í nóvember er liðið tók á móti Flensburg á heimavelli í dag í toppslag deildarinnar. Gestirnir frá Flensborg voru sterkari á lokakafla leiksins og unnu með þriggja...
- Auglýsing -

Hörður leikur um bronsið

Hörður Fannar Sigþórsson og samherjar hans í KÍF frá Kollafirði leika um bronsverðlaunin í færeysku úrvalsdeildinni í handknattleik eftir að þeir töpuðu öðru sinni fyrir ríkjandi meisturum, H71, með eins marks mun í Hoyvík í gærkvöld, 23:22. Staðan var...

Molakaffi: Halldór Stefán, Hinze, Roland og Kovacsics

Þótt lítið sé um að vera innanvallar í norskum handknattleik þessar vikurnar þá situr Halldór Stefán Haraldsson þjálfari B-deildarliðsins Volda ekki með hendur í skauti og bíður eftir sumrinu. Hann tilkynnti í gær að markvörðurinn Hante Hamel komi til...

Viggó og félagar velgdu meisturunum undir uggum

Viggó Kristjánsson, landsliðsmaður í handknattleik, og samherjar í Stuttgart veittu meisturum THW Kiel góða keppni þegar liðin mættust í þýsku 1. deildinni í handknattleik í Kiel í kvöld. Það var ekki fyrr en á síðustu sjö til átta mínútum...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -