Olísdeildir

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Rut Arnfjörð og Árni Bragi valin þau bestu

Rut Arnfjörð Jónsdóttir og Árni Bragi Eyjólfsson voru valin bestu leikmenn KA og KA/Þórs á lokahófi liðanna í gær.Rakel Sara Elvarsdóttir og Arnór Ísak Haddsson voru valin efnilegustu leikmennirnir og Martha Hermannsdóttir og Jón Heiðar Sigurðsson bestu liðsfélagarnir.Einnig voru...

Þjálfari Kríu flýgur á vit nýrra ævintýra

Lárus Gunnarsson verður ekki þjálfari Kríu í Olísdeild karla í handknattleik á næstu leiktíð. Hann  hefur verið ráðinn þjálfari norska 2. deildarliðsins, eða C-deildarliðsins, Bergsöy í Noregi til næstu þriggja ára. Lárus tekur við starfinu af Einari Jónssyni sem...

Hátt í 300 Eyjamenn mæta

Hið minnsta verða nærri 300 stuðningsmenn ÍBV í Origohöllinni í kvöld þegar ÍBV sækir Val heim í síðari viðureign liðanna í undanúrslitum Olísdeildar karla í handknattleik. Greint var frá því á Facebook-síðu handknattleiksdeildar ÍBV skömmu fyrir hádegið að 260...
- Auglýsing -

Dagskráin: Ræðst hvaða lið leika til úrslita

Síðari undanúrslitaleikir Olísdeildar karla í handknattleik fara fram í kvöld. Að þeim loknum liggur fyrir hvaða lið leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn á þriðjudaginn og á næsta föstudag. Leikið verður á heimavelli Hauka og Vals. Fyrri viðureignin hefst klukkan...

Miðar Eyjamanna runnu út eins og heitar lummur

Gríðarlegur áhugi er að meðal Vestmannaeyinga fyrir síðari leik Vals og ÍBV í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handknattleik, Olísdeildinni, sem fram fer í Origohöll Valsara á Hlíðarenda annð kvöld. Eyjafréttir greina frá að allir miðar í þeim hólfum sem...

Markadrottningin framlengir samning sinn

Markadrottning Olísdeildar kvenna á nýliðnu keppnistímabili, Ragnheiður Júlíusdóttir, hefur skrifað undir nýjan samning við Fram sem gildir fram til loka leiktíðinnar vorið 2024. Ragnheiður hefur leikið með Fram nánast frá blautu barnsbeini og árum saman verið máttarstólpi hins sterka...
- Auglýsing -

Þarf að súpa seyðið

Annan leikinn í röð var Agnari Smára Jónssyni leikmanni Vals sýnt rauða spjaldið í kappleik í gærkvöld þegar Valsmenn sóttu leikmenn ÍBV heim í fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum Olísdeildar karla í handknattleik. Að þessu sinni verður hann að...

Formaðurinn treysti sér ekki til að fylgjast með

Erlingur Kristjánsson formaður kvennaráðs KA/Þórs í handbolta treysti sér ekki til þess að horfa á síðari úrslitaleik KA/Þórs og Vals í úrslitum Íslandsmóts kvenna í handknattleik á síðasta sunnudag. Í viðtali við Akureyri.net, fréttamiðil allra Akureyringa, segist hann ekki...

Þykir vænt um að vera hluti af þessum hóp

„Tímabilið var stórkostlegt hjá okkur og betra en flestir áttu von á. Að verða meistari í lokin var hreint magnað,“ sagði Rut Arnfjörð Jónsdóttir, handknattleikskona hjá Íslandsmeisturum KA/Þórs, í samtali við handbolta.is. Koma Rutar til félagsins er að margra...
- Auglýsing -

Ekkert hik á Kríunni

Ekkert hik er á forráðamönnum Kríu þessa dagana. Þeir stefna ótrauðir á að taka sæti í Olísdeild karla en liðið vann sér inn þátttökurétt í síðustu viku eftir umspilsleiki við Víking og Fjölni í undanúrslitum. https://www.handbolti.is/kria-flaug-upp-um-deild-myndskeid/ Lárus Gunnarsson þjálfari liðsins og...

Mættur til leiks á ný

Örvhenta skyttan, Ásgeir Snær Vignisson, lék á ný með ÍBV í gær eftir nærri fjögurra mánaða fjarveru vegna meiðsla. Hann skoraði tvö mörk á heimavelli í gærkvöld gegn gömlu samherjum sínum í Val í fyrri undanúrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitlinn. Ásgeir...

Fyrirliðinn verður um kyrrt

Hornamaðurinn lipri Andri Þór Helgason hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Handknattleiksdeild Gróttu. Hann er og hefur verið einn besti vinstri hornamaður Olísdeildarinnar undanfarin ár og einkar örugg vítaskytta. Andri er jafnframt fyrirliði Gróttuliðsins.Andri var næstmarkahæsti leikmaður...
- Auglýsing -

Gerðum okkur leikinn erfiðari en þörf var á

„Við vorum mjög beittir í upphafi og vorum með góða stöðu, 6:6, eftir korter eða svo en síðan fóru þeir að rótera liðinu eða þá við urðum lélegir þá misstum við þá fram úr okkur. En við voru með...

Handboltinn okkar: Farið yfir undanúrslitaleikina

Hlaðvarpsþátturinn Handboltinn okkar var á ferðinni í kvöld þar sem að umsjónarmenn þáttarins fjölluðu um fyrri leikina í undanúrslitum í Olísdeild karla Í Vestmannaeyjum tóku heimamenn á móti Valsmönnum þar sem var boðið uppá hörkuleik. Valsmenn reyndust sterkari aðilinn í...

Ekkert í hendi ennþá

„Þetta var hörkuleikur eins og við bjuggum okkur undir,“ sagði Geir Guðmundsson, leikmaður Hauka í kvöld eftir fimm marka sigur, 28:23, á Stjörnunni í fyrri undanúrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla í TM-höllinni í kvöld. „Stjörnumenn eiga mörg vopn...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -