- Auglýsing -
- Auglýsing -

Útlönd

- Auglýsing -

Lærisveinar Arnórs Þórs lögðu toppliðið í undanúrslitum

Lærisveinar Arnórs Þórs Gunnarssonar í Bergischer HC gerðu sér lítið fyrir og unnu Evrópumeistara SC Magdeburg í undanúrslitaleik þýsku bikarkeppninnar í kvöld, 31:30. Úrslitin réðust ekki fyrr en að lokinni framlengingu og vítakeppni sem Bergischer HC vann, 5:4. Magdeburg...

Molakaffi: Polman, Garabaya, Lucin

Hollenska handknattleikskonan Estavana Polman hefur ákveðið að leggja keppnisskóna á hilluna í sumar. Polman var um skeið ein allra besta handknattleikskona Evrópu og var burðarás hollenska landsliðsins sem varð heimsmeistari 2019. Eftir að Polman sleit krossband í hné sumarið 2020...

Møllgaard verður aðstoðarþjálfari danska landsliðsins

Henrik Møllgaard, fyrrverandi landsliðsmaður og landsliðsfyrirliði, verður aðstoðarþjálfari stórmeistaralandsliðs Danmerkur í handknattleik karla. Frá þessu segir á vef TV2 í Danmörku. Møllgaard er 41 árs gamall og er sem stendur aðstoðarþjálfari franska meistaraliðsins PSG. Møllgaard lék sinn síðasta landsleik í...
- Auglýsing -

Greindist með hvítblæði

Josip Sarac, leikmaður Tatabánya KC í Ungverjalandi, hefur verið greindur með hvítblæði. Sarac er króatískur landsliðsmaður og vann meðal annars til silfurverðlauna með liðinu á EM 2020. Þessu greinir pólski handboltablaðamaðurinn Maciej Wosz á X-aðgangi sínum og getur þess að...

Standa þétt við bakið á Gottfridsson

Samtök evrópsks handknattleiksfólks, EHPU, hafa gefið það út að þau standi þétt við bakið á Jim Gottfridsson eftir að samningi hans hjá ungverska félaginu Pick Szeged var sagt upp einhliða. Gottfridsson lýsti yfir óánægju sinni eftir að Szeged sagði samningi...

Hlaut höfuðhögg í upphitun og fór grátandi af velli

Althea Reinhardt, markvörður Odense Håndbold og danska landsliðsins, varð fyrir því óláni að fá skot í höfuðið í upphitun fyrir leik liðsins gegn Horsens í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í gærkvöldi. TV 2 Sport greinir frá því að Reinhardt hafi gengið...
- Auglýsing -

Myndskeið: Hefur svona mark verið skorað áður?

Alþjóðahandknattleikssambandið, IHF, vakti í gær athygli á ansi óvenjulegu marki sem var skorað í ungmennaflokki karla í Hondúras á dögunum. „Er þetta frumlegasta mark sem þið hafið séð?“ var spurt á samfélagsmiðlum IHF og voru viðbrögðin misjöfn. Í athugasemdakerfinu voru nokkrir...

Færeyingar verða án síns besta leikmanns í umspilsleikjum HM

Elias Ellefsen á Skipagøtu, fremsti handknattleiksmaður Færeyinga um þessar mundir, getur ekki leikið með landsliði sínu í leikjunum mikilvægu við Bosníu í umspili fyrir heimsmeistaramótið um miðjan næsta mánuð. Elias hefur ekki enn jafnað sig af axlarmeiðslum sem hann...

Margreynd sænsk landsliðskona fallin frá

Theresa Claesson Andreasson, sænsk fyrrverandi landsliðskona, er látin 54 ára að aldri. Claesson Andreasson var margreynd og lék alls 89 A-landsleiki og skoraði í þeim 229 mörk undir lok síðustu aldar og í upphafi þessarar. Sænska handknattleikssambandið greindi frá og...
- Auglýsing -

Danska stórliðið framlengdi við þjálfarateymið

Danska handknattleiksfélagið Aalborg Håndbold hefur samið við þjálfarann Simon Dahl og aðstoðarþjálfarann Henrik Kronborg um að halda áfram þjálfun karlaliðsins til sumarsins 2029. Dahl hefur þjálfað stórlið Aalborg með afar góðum árangri frá því í nóvember árið 2024. Kronborg hefur...

Barcelona vann kapphlaupið um ungstirnið

Marcos Fis, 19 ára spænskur landsliðsmaður og leikmaður BM Granollers í heimalandinu, hefur samþykkt að ganga til liðs við stórveldið FC Barcelona sumarið 2027. Þessu greinir spænski miðillinn Mundo Deportivo frá. Fis, sem er örvhent skytta, skrifar undir þriggja ára...

Blásið til sóknar í Bæjaralandi

Blásið hefur verið í glæður handknattleiksáhuga í München, höfuðstað Bæjaralands. Enn einu sinni stendur til að hleypa krafti í íþróttina í borginni sem ekki hefur átt lið í efstu deild þýska handboltans í karlaflokki síðan TSV Milbertshofen með stórskyttuna...
- Auglýsing -

Norður Makedóníumennirnir í tveggja ára bann hjá EHF

Handknattleiksdómararnir Gjorgji Nachevski og Slave Nikolov hafa verið dæmdir í tveggja ára bann frá öllum störfum tengdum handboltaleikjum á vegum Handknattleikssambands Evrópu, EHF. Auk þess verða þeir að greiða 5.000 evrur í sekt, hvor fyrir sig, ríflega 700 þús...

Pick Szeged svarar yfirlýsingu Gottfridsson

Ungverska félagið Pick Szeged hefur gefið út yfirlýsingu þar sem brugðist er við yfirlýsingu sænska landsliðsmannsins Jim Gottfridsson. Samningi Gottfridssons var sagt upp fyrirvaralaust og hyggst hann leita réttar síns. Svíinn reyndi sagði í yfirlýsingu sinni að Szeged hafi með...

Molakaffi: Vieira, Hansen, Brandenborg, Rašimas, Bombač

Portúgalski handknattleiksmaðurinn Daniel Vieira sem lék með ÍBV frá 2023 til 2025 hefur samið við spænska liðið Balonmano Cajasol Ángel Ximénez frá og með næsta keppnistímabili. Hann leikur nú með Saran Loiret HB í næstefstu deild franska handknattleiksins og...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -