- Auglýsing -
- Auglýsing -

Yngri flokkar

- Auglýsing -
- Auglýsing -

FH-ingar koma heim með bronsverðlaun

Strákarnir í 5. flokki FH gerðu sér lítið fyrir og unnu til bronsverðlauna í B14 ára flokki á Partille cup mótinu í handknattleik sem lauk í Gautaborg í gær. Mótið er fjölmennasta yngriflokkamót í handknattleik sem haldið er í...

Myndasyrpa: Sigurgleði KA í Gautaborg

Eins og kom fram fyrr í dag á handbolta.is þá varð KA sigurvegari í B16 ára flokki pilta á Partille cup handknattleiksmótinu í Gautaborg í dag. Guðmundur Svansson ljósmyndari í Gautaborg var á staðnum og fangaði stemninguna þegar flautað...

KA-piltar eru Partille Cup meistarar – annað gull Stefáns

KA varð í dag Partille Cup meistari í handknattleik karla í B16 ára flokki, 4. flokkur eldra ár, eftir sigur á sænska liðinu Önnered, 15:10, í úrslitaleik eftir hádegið í dag. Sannarlega glæsilegur sigur hjá KA-liðinu sem hefur haft...
- Auglýsing -

Önnur myndasyrpa: Fleiri Íslendingar á Partille cup

Partille cup handknattleiksmótið í Svíþjóð gat loksins farið fram í vikunni en mótið hefur legið niðri undanfarin ár. Partille cup er fjölmennasta handknattleiksmót sem haldið er í Evrópu. Þangað streyma börn og unglingar víðsvegar að úr heiminum og skemmta...

Myndasyrpa: Íslendingar á Partille cup

Hið árlega Partille cup handknattleiksmót hófst í Gautaborg á mánudaginn og stendur yfir fram á sunnudag. Á að giska 600 leikmenn, þjálfarar og fararstjórar eru á mótinu að þessu sinni frá 12 félögum sem senda 53 lið til leiks....

Hrepptu þriðja sæti á Granolles cup

Þriðji flokkur KA gerði það aldeilis gott á Granolles cup mótinu á Spáni sem lauk í dag. KA-menn gerðu sér lítið fyrir og höfnuðu í þriðja sæti mótsins í flokki 21 árs og yngri. Leikmenn KA-liðsins eru á aldursbilinu...
- Auglýsing -

Mörg hundruð Íslendingar eru á leiðinni á Partille cup

Mörgum til ómældrar gleði fer Partille cup-mótið í handknattleik fram í Gautborg þetta árið eftir að hafa legið niðri undanfarin tvö ár. Eftir því sem fram kemur á íslenskri Facebook síðu mótsins er reiknað með að ríflega 600 leikmenn,...

Íslandsmeistarar heiðraðir á uppskeruhátíð HK

Glatt var hjalla og bros á hverju andliti í gærkvöld þegar HK hélt árlega uppskeruhátíð fyrir þriðja og fjórða aldursflokk. Stjórnendur barna- og unglingaráðs grilluðu hamborgara og veittar voru viðurkenningar til iðkenda eftir skemmtilegt keppnistímabil þar sem Íslandsmeistaratitill 3....

Þór hefur æfingar fyrir börn á Dalvík í haust

Handknattleiksdeild Þórs á Akureyri hefur ákveðið að byrja með handknattleiksæfingar á Dalvík í byrjun september. Í upphafi verða æfingarnar fyrir börn í fyrsta til sjötta bekk grunnskólans. Ef undirtektir verða góðar útilokar deildin ekki að efnt verði til æfinga...
- Auglýsing -

Uppskeruhátíð yngri flokka Vals

Uppskeruhátíð yngri flokka Vals fór fram í vikunni þar sem iðkendur gerðu upp góðan vetur með þjálfurum sínum. Yngri iðkendur fengu viðkenningarskjal fyrir frábæran vetur á meðan í eldri flokkunum eru veittar einstaklingsviðurkenningar fyrir veturinn. Eftirtaldir hlutu viðurkenningar:4. flokkur kvenna:Efnilegust:...

Viðurkenningar til yngri Framara á lokahófi

Lokahóf 3. og 4. aldursflokka Fram fór fram í gærkvöld. Veittar voru viðurkenningar fyrir keppnistímabilið sem er að baki en framundan er spennandi keppnistímabil hjá Fram með flutningi í glæsilega aðstöðu í Úlfarsárdal. Þjálfarar flokkanna fjögurra völdu þrjá leikmenn...

Tóku þá sænsku í kennslustund og tryggðu sér bronsið

Strákarnir í Reykjavíkurúrvalinu í handknattleik unnu bronsið á Balaton Cup fyrr í dag. Þeir burstuðu leikmenn Eskilstuna Guif með 18 marka mun, 34:16, og fengu þeir sænsku að kynnast því í síðari hálfleik hvar Davíð keypti ölið. Leikurinn fór...
- Auglýsing -

Frábær helgi hæfileikamótunar á Laugarvatni

Yfir 60 krakkar æfðu saman í Hæfileikamótun HSÍ á Laugarvatni síðustu helgi, var þetta lokahelgi Hæfileikamótunar í vetur. Jón Gunnlaugur Viggósson hefur haft yfirumsjón með verkefninu í vetur og skrifar hann hér að neðan hvernig helgin var hjá krökkunum. Það...

Silfur í Ósló eftir dramatískan úrslitaleik

Reykjavíkurúrval stúlkna hafnaði í öðru sæti á borgarleikunum í handknattleik eftir naumt tap fyrir úrvalsliði Kaupmannahafnar í úrslitaleik í morgun, 21:20. Danska liðið komst einu sinni yfir í leiknum og það var með sigurmarkinu sem skorað var beint úr...

Naumt tap – leika um bronsið á morgun

Reykjavíkurúrval stráka í handknattleik tapaði naumlega í dag fyrir Zagreb í undanúrslitum Balaton cup handknattleiksmótsins í Ungverjalandi, 27:26. Íslensku piltarnir leika þar með um þriðja sætið á mótinu á morgun gegn Guif frá Eskilstuna í Svíþjóð. Zagreb-liðið var með fimm...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -