Eva Björk Davíðsdóttir, fyrirliði Stjörnunnar á undanförnum árum, hefur tilkynnt að hún sé á förum frá félaginu. Að svo stöddu liggur ekki fyrir hvert förinni er heitið eftir sex tímabil í Garðabænum.
Eva Björk er 31 árs leikstjórnandi sem ólst upp hjá Gróttu og varð þar Íslandsmeistari árin 2015 og 2016. Handkastið gerir að því skóna að hún haldi heim á leið til Seltjarnarness í sumar.
Þrátt fyrir tap Gróttu fyrir Stjörnunni í umspili um sæti í Olísdeildinni á nýafstöðnu tímabili leika bæði lið á meðal þeirra bestu á því næsta eftir að ákveðið var að fjölga liðum úr átta í tíu á ársþingi HSÍ nýverið.
„6 tímabilum lokið í Stjörnubláu. [Þ]akklát fyrir þennan tíma þar sem skiptust á skin og skúrir, hlátur og grátur. Það eru svo mikil forréttindi að fá að vera hluti af svona hópi – takk öll sem eitt! Nú er komið að næsta kafla og nýjum ævintýrum sem ég er spennt að takast á við,“ skrifaði Eva Björk í færslu á Instagram.
Ásamt því að leika með Gróttu og Stjörnunni hér á landi hefur hún á ferlinum leikið sem atvinnumaður með Skuru IK í Svíþjóð, Ajax København í Danmörku og Sola HK í Noregi auk þess að hafa leikið fyrir íslenska A-landsliðið.



