Þungu fargi var létt af leikmönnum og þjálfurum U19 ára landsliðs karla í handknattleik í kvöld þegar töskurnar 22 sem skiluðu sér ekki í gærkvöldi eftir flug frá Keflavík til Zagreb birtust á hóteli liðsins í Đurđevac í Króatíu í kvöld. Mótshaldarar heimsmeistaramótsins sem hefst á morgun sáu um að koma töskunum í heimahöfn.
Aðeins fimm töskur liðsins birtust á Franjo Tudjman, alþjóðaflugvellinum í Zagreb í gærkvöld. Meðal þess sem vantaði voru aukabúningasett, nær allur æfingafatnaður, boltar, harpix og nuddbekkurinn góði sem nauðsynlegur er í hverri keppnisferð.
Nú hefur semsagt allur farangurinn skilað sér í höfuðstöðvarnar á Hotel Picok Djurdjevac. Menn létu sannarlega standa fram úr ermum við að fjarlægja töskurnar úr anddyri hótelsins.
Íslensku piltarnir leika við Tékka í fyrstu umferð riðlakeppni heimsmeistaramótsins á morgun í íþróttahöllinni í Koprivnica hvar þeir æfðu í dag. Flautað verður til leiks klukkan 13.30 og verður textalýsing á handbolti.is auk þess sem handbolti.is býður lesendum upp á að tengjast streymi frá viðureigninni.
Leikir Íslands C-riðli: 2. ágúst kl. 13.30: Ísland - Tékkland. 3. ágúst kl. 13.30: Ísland - Japan. 5. ágúst kl. 13.30: Ísland - Egyptaland.