Handknattleikssamband Íslands leitar til þjóðarinnar um að hlaupa undir bagga vegna tuga milljóna króna viðbótarkostnaðar sem hefur hlotist af þátttöku íslenska landsliðsins á Evrópumeistaramótinu í handknattleik karla. Þess vegna hefur HSÍ opnað styrktarsíðu á heimasíðu sinni þar sem hægt er að láta af hendi rakna frá 2.500 til 10.000 krónur.
Viðbótarkostnaðurinn er allur kominn til vegna kórónuveirufaraldursins og er kostnaðurinn langt umfram áætlanir, eftir því segir í tilkynningu HSÍ.
Viðbótarútgjöld felast m.a. við hótelbúbblu á Íslandi í 10 daga, fámennu leiguflugi út, auknum sóttvörnum á hóteli liðsins í Búdapest og vegna þess að kalla hefur þurft eftir fjölda leikmanna til að mæta þeim áföllum sem leikmannahópurinn hefur orðið fyrir á síðustu dögum.
Til að styrkja sambandið er hægt að fara inn í netverslun HSÍ og velja styrki upp á 2.500 kr, 5.000 kr og 10.000 sem renna óskipitir til HSÍ.
Tengill á styrkarvef HSÍ, smellið hér. Styrktarupphæðir er að finna hægra megin á síðunni, 2.500, 5.000 og 10.000 kr.
„Hafi einstaklingar eða fyrirtæki áhuga á að styrkja um aðra upphæð er hægt að hafa samband við Kjartan Vídó, markaðsstjóra HSÍ með tölvupósti [email protected],“ segir ennfremur í tilkynningu Handknattleikssambands Íslands.