Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur staðfest leikdaga og leiktíma íslenska landsliðsins í riðlakeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik í byrjun desember. Tveir leikir íslenska landsliðsins hefjast klukkan 15.30 að íslenskum tíma og síðasti leikur riðlakeppninnar, við Ungverja, byrjar klukkan 18.
3. desember: Slóvenía – Ísland, kl. 15.30.
5. desember: Svartfjallaland – Ísland, kl. 15.30.
7. desember: Ísland – Ungverjaland, kl. 18.
Dregið var í riðla í Katowice í Póllandi í síðustu viku. Niðurstaðan var þessi:
A-riðill: (Oradea, Rúmenía): Ungverjaland, Svartfjallaland, Slóvenía, Ísland.
B-riðill: (Cluj-Napoca, Rúmenía): Noregur, Rúmenía, Sviss, Norður-Makedónía.
C-riðill: (Antalya, Tyrkland): Danmörk, Spánn, Tyrkland, Grikkland.
D-riðill: (Brno, Tékkland): Holland, Tékkland, Austurríki, Króatía.
E-riðill: (Katowice, Pólland): Frakkland, Pólland, Færeyjar, Úkraína.
F-riðill: (Bratislava, Slóvakía): Svíþjóð, Þýskaland, Slóvakía, Serbía.
– Tvö efstu lið hvers riðils komast áfram í milliriðla. Tvö neðstu liðin heltast úr lestinni.
Miðasala er hafin
Þau sem vilja hafa vaðið fyrir neðan sig og síður vakna upp við vondan draum á elleftu stundu þegar miðar verða uppseldir er rétt að minna á að miðasala er hafin á Evrópumótið. Reikna má með góðri aðsókn á leiki íslenska landsliðsins vegna þess að ungverska landsliðið á sæti í riðlinum. Ríkur áhugi er fyrir handknattleik í Ungverjalandi. Stutt er á milli Oradea og Debrechen, næst fjölmennustu borgar Ungverjalands. Aðeins um klukkustundarakstur. Rík hefð er fyrir handknattleik í Debrechen, jafnt kvenna sem karla.
Hlekkur á miðasöluna – smellið hér.



