- Auglýsing -
Hafi einhverntímann verið ástæða til þess að nota orðatiltækið, glatt á hjalla, þá var að í dag þegar stuðningsmenn íslenska landsliðsins í handknattleik komu saman á Clarion Hotel Post í Gautaborg um miðjan daginn. Þar var hitað upp fyrir stórleikinn við Svía á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Scandinavium íþróttahöllinni.
Íslendingar komu í fleiri hundruðu vís til borgarinn í dag með beinu flugi en einnig með lestum frá Danmörku. Allir mættust á Clarion Hotel Post og gerðu sér glaðan dag svo um munaði.
Hafliði Breiðfjörð ljósmyndari skrapp á Clarion Hotel Post og smellti nokkrum myndum af á vél sína.
Flautað verður til leiks Íslands og Svíþjóðar í Scandinavium klukkan 19.30.
- Auglýsing -