- Auglýsing -
- Felix Claar sem verið hefur utan hóps hjá Svíum vegna meiðsla í tveimur síðustu leikjum á Ólympíuleikunum kemur endurnærður til leiks í dag þegar Svíar mæta Dönum í átta liða úrslitum. Felix Möller verður utan sænska hópsins í stað nafna síns. Leikur Dana og Svía hefst klukkan 15.30.
- Fleiri breytingar verða á leikmannahópum liðanna fyrir átta liða úrslitin í dag. Egyptinn Mohab Abdelhak sem fékk slæma byltu og var borinn af leikvelli í viðureign Egyptalands og Noregs á dögunum mætir til leiks á ný gegn Spánverjum árdegis í dag.
- Luca Witzke tekur sæti í þýska landsliðinu á ný eftir að hafa setið yfir í leiknum við Slóvena. Justus Fischer fer í staðinn upp í stúku en hann leysti Witzke af.
- Matej Gaber, Borut Mackovsek og markvörðurinn Klemen Ferlin mæta galvaskir til leiks með slóvenska landsliðinu gegn Noregi. Nik Henigman, Nejc Cehte og Urh Kastelic verða hinsvegar utan leikmannahópsins.
- Eftir því sem næst verður komist mun Dylan Nahi áfram verða utan liðsins hjá Frökkum vegna meiðsla. Frakkar leika við Þjóðverja.
- Leikir dagsins í átta liða úrslitum handknattleikskeppni karla á Ólympíuleikunum:
Spánn – Egyptaland, kl. 7.30.
Þýskaland – Frakkland, kl. 11.30.
Danmörk – Svíþjóð, kl. 15.30.
Noregur – Slóvenía, kl. 19.30.
- Auglýsing -