- Auglýsing -
Tveir leikmenn Gróttu og tveir úr Fram eru í liði nóvember mánaðar sem tölfræðiveitan HBStatz tók saman úr gögnum sínum og birti fyrr í dag.
Einar Baldvin Baldvinsson, markvörður, og Andri Þór Helgason, vinstri hornamaður Gróttu, eru í liðinu auk Breka Dagssonar og Rógva Dahl Christiansen frá Fram.
Benedikt Gunnar Óskarsson frá Val, sem HBStatz útnefndi í dag leikmann síðasta mánaðar, er einnig í liðinu ásamt Rúnari Kárasyni stórskyttu úr ÍBV og Óðni Þór Ríkharðssyni, hægri hornamanni KA.
Varmamenn í liðinu eru Tjörvi Þorgeirsson, Haukum, og Ágúst Birgisson, FH.
- Auglýsing -