- Auglýsing -
- Auglýsing -

Efst á baugi

- Auglýsing -

Grétar Áki hættur þjálfun ÍR

Grétar Áki Andersen er hættur þjálfun kvennaliðs ÍR í Olísdeildinni eftir eins árs veru í stól þjálfara. Leikmönnum ÍR var tilkynnt í gær að Grétar Áki væri hættur þjálfun liðsins og í morgun sendi handknattleiksdeild ÍR frá sér tilkynningu. Grétar...

Reynir Þór fór á kostum – skoraði 21 mark

Reynir Þór Stefánsson fór hamförum í viðureign með ungmennaliði MT Melsungen í viðureign liðsins við SGSH Dragons í 3. deildinni um síðustu helgi. Hann skoraði 21 mark í tveggja marka sigri MT Melsungen II á Drekunum, 38:36. Þar af...

Aron Hólm verður áfram hjá Þór

Aron Hólm Kristjánsson og handknattleiksdeild Þórs hafa framlengt samning sinn til næstu tveggja ára. Aron er uppalinn Þórsari og hefur gengið í gegnum súrt og sætt með liði félagsins. Aron Hólm skoraði 27 mörk í 17 leikjum með Þór í...
- Auglýsing -

Birgir Steinn og félagar í undanúrslit eftir sigur í oddaleik

Birgir Steinn Jónsson og liðsfélagar í IK Sävehof tryggðu sér sæti í undanúrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í kvöld er þeir lögðu Hammarby, 38:33, í oddaleik á heimavelli Hammarby í Stokkhólmi. Eftir tvo tapleiki í röð mættu leikmenn IK...

Aron Rafn úrskurðaður í leikbann

Aron Rafn Eðvarðsson markvörður Hauka var úrskurðaður í eins leiks bann á fundi aganefndar HSÍ í dag. Aron virðist hafa hlaupið á sig eftir að viðureign Hauka og FH í undanúrslitum Olísdeildar karla lauk síðasta föstudag. „Aganefnd barst skrifleg skýrsla...

Orfeus verður áfram í herbúðum HK

Orfeus Andreou og HK hafa ákveðið að framlengja samstarf sitt. Andreou kom til HK í byrjun febrúar eftir að hafa verið helsta driffjöður handknattleiksins hjá Víði Garði um árabil. Ekki kemur fram í tilkynningu HK til hversu langs tíma nýr...
- Auglýsing -

Gunnar Hrafn til Víkings

Handknattleiksdeild Víkings úr Reykjavík hefur samið við Gunnar Hrafn Pálsson um að leika með liðinu á næsta tímabili. Hann kemur til liðsins frá Gróttu. Víkingur vann Grill 66 deildina á nýafstöðnu tímabili og leikur því í Olísdeildinni á því...

Færeyingurinn yfirgefur Aftureldingu

Færeyingurinn Sveinur Olafsson leikur ekki áfram með Aftureldingu á næsta tímabili. Samningur hans er á enda runninn og hyggst Sveinur flytja til Danmerkur og sameina þar handboltaiðkun og nám. Staðfesti hann tíðindin í samtali við Handkastið. Sveinur er 23 ára...

Alfreð hæstánægður með bikarhelgina

Alfreð Gíslason, þjálfari þýska karlalandsliðsins, var viðstaddur úrslitahelgi þýsku bikarkeppninnar þar sem Füchse Berlín fór með sigur af hólmi gegn lærisveinum Arnórs Þórs Gunnarrsonar í Bergischer HC í úrslitaleiknum í Lanxess Arena í Köln í gær. Alfreð fylgdist eins og...
- Auglýsing -

Gat ekki staðið úti í mínus sex gráðum í desember

Emil Nielsen, einn besti ef ekki besti markvörður heims, segir nokkuð skondna ástæðu liggja að baki því að hann hafi ákveðið að velja handbolta fram yfir fótbolta á sínum yngri árum. Nielsen er 29 ára gamall aðalmarkvörður danska landsliðsins og...

Leikmenn SC Magdeburg rændir

Íslendingalið SC Magdeburg átti ekki góða helgi þar sem það tapaði báðum leikjum sínum um úrslitahelgi þýsku bikarkeppninnar. Í þokkabót voru Felix Claar og Albin Lagergren, sænskir leikmenn liðsins, rændir eigum sínum. Magdeburg hafnaði í fjórða sæti bikarkeppninnar eftir að...

Varnarmaðurinn öflugi áfram í Úlfarsárdalnum

Sóldís Rós Ragnarsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt Fram. Gildir nýi samningurinn til næstu þriggja ára, til sumarsins 2029. Sóldís Rós er tvítug skytta sem spilar þó mestmegnis í vörninni, þar sem hún er í lykilhlutverki hjá...
- Auglýsing -

Molakaffi: Elvar, Guðmundur, Ísak

Elvar Ásgeirsson skoraði fimm mörk, gaf tvær stoðsendingar og var einu sinni vikið af leikvelli er Ribe-Esbjerg tapaði stórt fyrir HØJ, 39:25, í umspili dönsku úrvalsdeildarinnar í gær. Ribe-Esbjerg var á grænni grein fyrir leikinn og heldur sæti sínu...

Donni skoraði fimm mörk – Skanderborg efst í riðlinum

Skanderborg AGF, lið Kristjáns Arnar Kristjánssonar Donna, vann TTH Holstebro, 37: 30, í Holstebro í kvöld í 3. umferð annars af tveimur riðlum úrslitakeppninnar um danska meistaratitilinn í handknattleik. Stendur Skanderborg þar með afar vel að vígi að hálfnaðri...

Stjarnan jafnaði metin – spenna í umspilinu

Stjarnan jafnaði metin í einvíginu við Gróttu í umspili Olísdeildar kvenna í handknattleik í dag, 26:22. Staðan var 13:10 Stjörnunni í hag að loknum fyrri hálfleik. Leikið var í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi. Hvort lið hefur þar með unnið einn leik...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -