- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Allt að 60 til 70% tekjufall

Áhrif kórónuveurunnar hefur haft gríðarleg áhrif á rekstur handknattleiksdeilda félaga á landinu. Hafa tekjur sumra þeirra fallið um allt að 60-70% frá því mars. Þetta kom fram í samtölum sem handbolti.is átti við formenn nokkurra handknattleikleiksdeilda sem eiga...

Leikið við Ísrael heima í nóvember

HSÍ hefur fallist á beiðni Ísraela að skipta á heimaleikjum landanna í undankeppni Evrópumótsins í handknattleik karla. Íslenska landsliðið átti að fara til Ísrael og leika við landslið þeirra 8. nóvember nk. en vegna stöðu Covid-19 þar í landi...

Verðum að stöðva Rúnar

Rúnar Kárason hefur leikið vel með Ribe-Esbjerg í dönsku úrvalsdeildinni á keppnistímabilinu þótt liði hans hafi ekki gengið sem skildi en það situr í 11. sæti af 14 liðum deildarinnar með þrjú stig. Rúnar er markahæsti leikmaður liðsins með...
- Auglýsing -

Viggó og Bjarki Már meðal þeirra efstu

Seltirningurinn Viggó Kristjánsson, leikmaður Stuttgart, er næst markahæsti leikmaður þýsku 1. deildarinnar þegar þremur umferðum er lokið og Bjarki Már Elísson, Lemgo og markakóngur síðasta tímabils er, í fjórða sæti með 21 mark. Þeir eru fulltrúar Íslands á lista...

Molakaffi: Stórsigur í Drammen og hjá Aðalsteini

Viktor Petersen Norberg skoraði þrjú mörk og Óskar Ólafsson eitt þegar lið þeirra Drammen vann Viking frá Stavangri, 35:23, í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Leikið var í Drammenshallen. Með sigrinum færðist Drammen-liðið upp í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar....

Neistin tapaði stigi en úrslitin véfengd

Neistin, liðið sem Arnar Gunnarsson þjálfar, tapaði sínu fyrsta stigi í dag þegar það gerði jafntefli við VÍF frá Vestmanna, 35:35, í hörkuleik í Höllinni á Hálsi í Þórshöfn. Teitur Magnússon jafnaði metin fyrir Neistan þegar þrjár sekúndur voru...
- Auglýsing -

Sá sjötti er í höfn

Áfram heldur sigurganga IFK Kristianstad í sænsku úvaldsdeildinni í handknattleik og annan leikinn í röð vann Kristianstad-liðið hnífjafna viðureign á síðustu sekúndum. Teitur Örn Einarsson skoraði þrjú mörk og átti sex stoðsendingar í dag og Ólafur Andrés Guðmundsson, fyrirliði,...

Perla Ruth í handboltafrí

Kvennalið Fram hefur orðið fyrir annarri blóðtöku á innan við viku en nú er ljóst að landsliðskonan Perla Ruth Albertsdóttir leikur ekki meira með liðinu á keppnistímabilinu. Perla Ruth staðfesti þetta við handbolta.is áðan. „Ég á von á barni...

Meistaradeild: Györi stöðvaði Danina

Fjórða umferðin í Meistaradeild kvenna fór fram um helgina en kórónuveiran hélt þó áfram að setja strik í reikninginn þar sem einum leik var frestað og einhver lið voru án leikmanna. Danska liðið Odense hefur hlotið verðskuldaða athygli á þessari...
- Auglýsing -

Löwen og Bergischer áfram á sigurbraut

Þrjú lið eru með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir í þýsku 1. deildinni en síðustu leikir umferðarinnar voru leiknir í dag. Rhein-Neckar Löwen, sem Alexander Petersson og Ýmir Örn Gíslason leika með, og Arnór Þór Gunnarsson og Ragnar...

„Ég stóð í blokk allan tímann“

Hildigunnur Einarsdóttir og samherjar hennar í Bayer Leverkusen töpuðu naumlega fyrir liði Buxtehuder SV, 17:16, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag en leikið var á heimavelli Buxtehuder. Einstaklega fá mörk voru skoruð í leiknum, aðeins 33, þar...

Keppni liggur að mestu niðri

Keppni í pólsku úrvalsdeildinni í handknattleik karla hefur meira og minna legið niðri síðustu 10 daga vegna kórónuveirunnar. Einn og einn leikur á stangli hefur farið fram og óvíst er hvernær keppni hefst af krafti aftur. Eitthvað hefur verið...
- Auglýsing -

Grímuleikur á Spáni – myndskeið

Þegar lið Ademar León og BM Sinfin mættust í spænsku 1.deildinni í handknattleik í gær var leikmönnum beggja liða skylt að leika með grímur. Var það gert vegna vaxandi útbreiðslu kórónuveirunnar víða á Spáni. Sennilega er þetta í fyrsta...

Hef tekið miklum framförum

„Ég kann afar vel við mig hérna auk þess sem umgjörðin hjá félaginu er fyrsta flokks. Allt er afar faglegt og reynt að hafa hlutina þannig að manni líður vel,“ segir örvhenta skyttan Teitur Örn Einarsson sem hefur hafið...

Molakaffi: Viggó fór með himinskautum gegn Balingen

Viggó Kristjánsson fór með himinskautum þegar Stuttgart vann Balingen, 30:28, í þýsku 1. deildinni í handknattleik á útivelli í gærkvöld. Viggó skoraði 11 mörk, þar af þrjú úr vítaköstum og var besti maður vallarins í leiknum. Honum brást aðeins...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -