Jökull Blöndal Björnsson og Patrekur Smári Arnarsson hafa framlengt samningum sínum við handknattleiksdeild ÍR til ársins 2029. Báðir spiluðu þeir lykilhlutverk í ÍR-liðinu á nýafstöðnu tímabili í Olísdeild karla en ÍR féll úr deildinni. Báðir tóku þeir þátt í...
Hér fyrir neðan er leikjadagskrá umspils Olísdeildar kvenna í handknattleik sem hófst sunnudaginn 29. mars. Dagskráin verður uppfærð eftir því sem keppninni vindur fram með úrslitum, leikdögum og leiktímum.
Leikir umspilsins verða sendir út á Handboltapassanum.
Úrslit
16. apríl: Stjarnan - Grótta...
Grótta hrósaði sigri í fyrsta úrslitaleiknum við Stjörnuna í úrslitum umspils Olísdeildar kvenna í handknattleik í kvöld í Hekluhöllinni í Garðabæ. Lokatölur voru 23: 21. Elísabet Ása Einarsdóttir innsiglaði sigur Gróttu átta sekúndum fyrir leikslok. Næsta viðureign liðanna fer...
Markvörðurinn Þórdís Idda Ólafsdóttir er gengin alfarið í raðir Víkings Reykjavík, þar sem hún lék að láni frá Fram á nýafstöðnu tímabili. Þórdís Idda skrifaði undir tveggja ára samning við Víkinga.
Hún er 18 ára gömul og lék tvo leiki...
Handknattleiksdeild Aftureldingar stendur í ströngu þessa dagana. Þrír leikmenn hafa nýverið gengið til liðs við kvennaliðið og annað eins af leikmönnum hafa framlengt samninga sína. Nú bætist Ásdís Halla Helgadóttir í hóp þeirra síðarnefndu.
Ásdís Halla er 19 ára línumaður...
Í kvöld fer fram fyrsti leikur í viðureign Stjörnunnar og Gróttu í umspili um eitt sæti í Olísdeild kvenna. Stjarnan reynir að halda sæti sínu á meðal þeirra bestu á meðan Grótta freistar þess að hrifsa sætið af Garðbæingum.
Leikurinn...
Hér fyrir neðan er leikjadagskrá umspils Olísdeildar karla í handknattleik sem hófst föstudaginn 27. mars. Dagskráin var uppfærð eftir því sem keppninni vatt fram með úrslitum, leikdögum og leiktímum.
Úrslit:
8. apríl: Stjarnan - Hörður 35:20 (16:10).11. apríl: Hörður - Stjarnan...
Stjarnan heldur sæti í Olísdeild karla. Það er staðreynd eftir þriðja sigurinn á Herði í úrslitum umspils Olísdeild í Hekluhöllinni í Garðabæ í kvöld, 40:32. Framlengja varð leikinn vegna þess að staðan var jöfn, 29:29, að loknum 60 mínútum....
Handknattleikskonan Vera Pálsdóttir hefur samið við Aftureldingu um að leika með liði félagsins á næstu leiktíð. Virðast flest vötn falla til Varmár um þessar mundir því Vera er þriðji leikmaðurinn sem gengur til liðs við kvennalið Aftureldingar á örfáum...
Þór Guðmundsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Fjölni til næstu tveggja ára. Samhliða því mun Þór einnig stýra 3. flokki kvenna hjá félaginu. Þór tekur við af Gunnari Val Arasyni sem þjálfað hefur Fjölnisliðið um árabil en...
Adela Eyrún Jóhannsdóttir, Hulda Hrönn Bragadóttir og Sylvía Bjarnadóttir hafa framlengt samninga sína við handknattleiksdeild Selfoss til næstu þriggja ára.
Adela Eyrún er skytta á nítjánda ári sem hefur leikið með meistaraflokki Selfoss síðustu tímabil og verið að fá stærra...
Þóra Lind Guðmundsdóttir og Aníta Rut Eggertsdóttir, leikmenn Fram, hafa báðar skrifað undir nýja samninga við handknattleiksdeild félagsins. Samningar beggja eru til næstu tveggja ára.
Þóra Lind er 18 ára vinstri hornamaður sem hefur leikið með meistaraflokki, Fram 2 í...
Mattý Rós Birgisdóttir er gengin til liðs við Aftureldingu frá Víkingi Reykjavík. Skrifaði hún undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild Aftureldingar.
Mattý Rós, sem er 21 árs hornamaður, er uppalin hjá HK en hafði leikið með Víkingi frá árinu 2023.
Andrea...
Davíð Örn Hlöðversson þjálfari karlaliðs Gróttu og Lárus Gunnarsson aðstoðarþjálfari hafa ákveðið að láta af störfum eftir árs starf. Undir þeirra stjórn hafnaði Grótta í öðru sæti Grill 66-deildar karla með jafn mörg stig og Víkingur sem vann deildina....
Stjarnan stendur vel að vígi í úrslitum umspils Olísdeildar karla eftir að hafa lagt Hörð, 24:21, í annarri viðureign liðanna á Ísafirði í kvöld. Næst leiða liðin saman hesta sína í Hekluhöllinni á miðvikudaginn. Takist Stjörnunni að vinna þá...