- Auglýsing -
- Auglýsing -

Olís karla

- Auglýsing -

Jokanovic heldur áfram að verja mark ÍBV

Markvörðurinn öflugi, Petar Jokanovic, verður áfram í herbúðum ÍBV. Félagið tilkynnti í dag að hann hafi skrifað undir nýjan samning sem gildir til næstu tveggja ára. Jokanovic gekk til liðs við ÍBV árið 2019 og er að verða einn...

Halldór Kristinn lætur staðar numið

Halldór Kristinn Harðarson, leikmaður Þórs á Akureyri, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna, 33 ára að aldri, og tekur um leið við starfi styrktarþjálfara meistaraflokks og yngri flokka hjá félaginu. Lék Halldór Kristinn í alls þrjú ár með...

Nökkvi Snær leggur skóna á hilluna

Nökkvi Snær Óðinsson, leikmaður ÍBV, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna aðeins 27 ára gamall. Kemur þetta fram í tilkynningu frá handknattleiksdeild ÍBV. Nökkvi Snær lék alla tíð með ÍBV og varð til að mynda Íslandsmeistari með liðinu árið...
- Auglýsing -

Antoine Óskar til FH

Antoine Óskar Pantano er genginn til liðs við FH frá uppeldisfélagi sínu Gróttu. Skrifar hann undir þriggja ára samning, til sumarsins 2029. Antoine Óskar er 19 ára gamall leikstjórnandi sem var í lykilhlutverki hjá Gróttu í Grill 66 deildinni á...

Ihor var sagt upp – veit ekki hvað tekur við

Handknattleiksmaðurinn Ihor Kopyshynskyi er án samnings eftir að Afturelding sagði upp samningi sínum við hann í lok leiktíðar. Frá þessu er greint á Handkastinu. Ihor, sem er 35 ára gamall fékk íslenskan ríkisborgararétt fyrir ári, segist um þessar mundir...

Tveggja ára samningur Daníels Karls við Stjörnuna

Daníel Karl Gunnarsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Stjörnuna. Daníel Karl er vinstri hornamaður auk þess að geta brugðið sér í allra kvikinda líki þegar kemur að varnarleik. Daníel Karl er uppalinn á Selfossi en hefur undanfarin...
- Auglýsing -

Reyndur hornamaður hefur samið við Víking

Handknattleiksdeild Víkings hefur samið við Þorgeir Bjarka Davíðsson um að leika með meistaraflokki karla á komandi tímabili í Olísdeild karla. Þorgeir kemur til félagsins frá uppeldisfélagi sínu Gróttu sem hann hefur leikið með síðustu tvö ár eftir að hafa...

Ágúst til liðs við FH

Ágúst Guðmundsson er genginn til liðs við FH frá HK. Skrifar hann undir þriggja ára samning við FH, sem gildir til sumarsins 2029. Ágúst er tvítug hægri skytta sem hefur verið í stóru hlutverki hjá uppeldisfélagi sínu HK undanfarin tímabil...

Dagur Sverrir til Stjörnunnar

Dagur Sverrir Kristjánsson hefur samið við Stjörnuna um að leika með liðinu næstu tvö tímabil. Kemur hann frá Vinslövs HK í Svíþjóð. Dagur Sverrir er 25 ára örvhent skytta sem hefur leikið í Svíþjóð undanfarin þrjú ár. Fyrstu tvö árin...
- Auglýsing -

Carlos kveður á Selfossi

Carlos Martin Santos og handknattleiksdeild Umf. Selfoss hafa komist að samkomulagi um starfslok hans sem þjálfari meistaraflokks karla. Er þetta gert að ósk Carlos, eftir því sem segir í tilkynningu handknattleiksdeildar Umf. Selfoss í kvöld. Ekki kemur fram í...

Patrekur Guðni framlengir í Kórnum

Patrekur Guðni Þorbergsson, markvörður HK, hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt. Nýi samningurinn gildir til næstu þriggja ára, til sumarsins 2029. Patrekur Guðni er 19 ára gamall og hefur leikið með HK alla tíð. Hann hefur æft með...

Ísak hefur ákveðið að láta gott heita

Handknattleiksmaðurinn Ísak Rafnsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Hann segir frá ákvörðun sinni á samfélagsmiðlum. Ísak hefur síðustu fjögur ár leikið með ÍBV og var m.a. Íslandsmeistari með liðinu fyrir þremur árum. Ísak lék upp yngri flokka FH...
- Auglýsing -

Þorvaldur verður áfram í Mosfellsbæ

Línu- og varnarmaðurinn trausti Þorvaldur Tryggvason hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Aftureldingu. Hann kom til félagsins frá Fram fyrir þremur árum og hefur leikið 92 leiki með Mosfellingum og skorað 105 mörk en ekki síst verið...

Þorvaldur Örn heldur til Póllands

Þorvaldur Örn Þorvaldsson, línumaður Íslands- og deildarmeistara Vals, hefur ákveðið að þekkjast samningstilboð GE Wybrzeże Gdansk í Póllandi og gengur til liðs við félagið í sumar. Samningur Þorvalds Arnar við Val rennur út nú í sumar en Wybrzeże Gdansk bauð...

Róbert Örn rær á önnur mið

Róbert Örn Karlsson, markvörður HK, verður ekki áfram í herbúðum félagsins á næsta tímabili. Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari HK, greindi frá þessu í samtali við Handkastið. Róbert Örn, sem er 28 ára gamall, hafði leikið með HK frá árinu 2021,...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -